fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.
Virðulegur forseti. Það er mikið rætt um störf án staðsetningar og hv. þingmaður gerir það hér. Ég hef forðast það í þessari umræðu að tala um störf án staðsetningar. Vegna hvers? Vegna þess að það er að mínu mati tvíbent sverð. Þegar hv. þingmaður og aðrir ræða um störf án staðsetningar þá er oftast sú meining lögð í þá setningu að þá eigi að flytja störfin út á land, fólk geti úti á landi unnið störf sem eru hér til staðar. En störf án staðsetningar geta líka verið til á höfuðborgarsvæðinu, þ.e. störf úti á landi geta líka verið unnin á höfuðborgarsvæðinu. Það er ekki markmið mitt með þeim breytingum sem ég ætla að innleiða þótt ég telji það vera órjúfanlegan hluta af framtíðinni að störf án staðsetningar eigi eftir að hljóta aukið vægi og verða miklu meiri þáttur í okkar lífi og jafnvel störf heima unnin. Það eru algerlega klár undirliggjandi markmið að ná betri þjónustu við borgarana í þessum breytingum og fjölga störfum úti á landi eins og ég hef ítrekað komið inn á. Við lokum engum starfsstöðvum. Við ætlum að auka þjónustuna líka í hinum dreifðari byggðum þar sem fólk á um lengri veg að fara, þar sem starfsstöðvar eru ekki til staðar með samningum við skrifstofur sveitarstjórna á þeim stöðum sem geta sinnt ákveðnu móttöku- og afhendingarhlutverki fyrir starfsstöðvar sýslumanna til að spara fólki sporin. Þetta eru grundvallaratriði. Ég fer ekki í neinar breytingar, hvorki á starfsumhverfi sýslumanna, lögreglu né dómstóla, öðruvísi en að þessum markmiðum sé náð vegna þess að annars er verr af stað farið, að mínu mati, heldur en heima setið. En mun þetta hafa áhrif á starfsfólk? Störf sem þú tekur einhvers staðar frá og færir út á land á sama tíma og það er verið að fækka störfum vegna stafrænnar innleiðingar, vegna rafrænnar þjónustu — öll þessi störf, það sparast svo mikið við þessa nýju tækni, þá fækkar einhvers staðar störfum. (Forseti hringir.) En markmiðið með þessum breytingum er að tryggja starfsstöðvar og þjónustu um allt land til að auka búsetugæði og jafnræði íbúanna.