152. löggjafarþing — 63. fundur,  6. apr. 2022.

fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.

513. mál
[18:00]
Horfa

Daníel E. Arnarsson (Vg):

Virðulegur forseti. Aðgerðaáætlun um meðferð kynferðisbrota er verkfæri sem við höfum komið okkur upp til að bæta úr þeim brotalömum sem má finna á vinnslu og meðferð slíkra brota. Sú áætlun sem nú er við lýði rennur út í lok árs og samkvæmt fjármálaáætlun verður hafist handa við vinnu að nýrri áætlun sem tekur við af þeirri eldri þegar í upphafi 2023. Í núverandi aðgerðaáætlun um meðferð kynferðisbrota er skýrt kveðið á um að innan lögreglunnar eigi að samræma gátlista og verkferla, stytta málsmeðferðartíma, leita í auknum mæli til sérfræðinga sem hafa sérhæft sig í einkennum og afleiðingum áfalla. Einnig segir í sömu aðgerðaáætlun að gera ætti gangskör í endurmenntun og fræðslu lögregluþjóna, útbúa virka endurmenntunarstefnu og einnig að rannsóknarlögreglumenn skyldu fara á námskeið svo tryggt sé að þeir séu faglega undirbúnir til að sinna skýrslutöku í rannsóknum kynferðisbrotamála. Þannig má tryggja bætta málsmeðferð og efla faglegt starf lögreglunnar. Það er mikilvægt að tryggja að öll njóti réttlátrar málsmeðferðar, óháð uppruna og þjóðerni, litarhætti, trúarbrögðum, kynferði, kynhneigð, kynvitund, kyneinkennum, kyntjáningu, aldri, efnahag, fötlun, heilsufari eða annarri stöðu, eins og segir í áætluninni. Hækkun á fjárframlögum til löggæslu er því sérstakt fagnaðarefni í nýsamþykktum fjárlögum. Þá á ég við þær 200 milljónir sem ætlaðar eru til að efla rannsókn og saksókn í kynferðisbrotamálum í samræmi við áherslur ríkisstjórnarinnar. Í fjármálaáætlun þeirri sem hér liggur er lögð á það sérstök áhersla að bregðast við þeim áskorunum sem meðferð kynferðisbrota stendur frammi fyrir; tryggja brotaþolum réttláta málsmeðferð og stytta vinnslutíma mála. Því langar mig að spyrja hæstv. ráðherra hvort hann þekki stöðu þeirra verkefna sem ráðist var í á grunni fyrri áætlunar og jafnframt hvort ráðherrann sjái tækifæri til að gera enn betur á þessu sviði með nýrri áætlun og auknum framlögum.