fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.
Virðulegur forseti. Hér er um að ræða einn viðkvæmasta málaflokkinn sem við er að eiga í löggæslu og rannsóknum. Ég vil byrja á að segja að það hefur mikið og gott starf verið unnið, ekki síst að frumkvæði lögreglunnar og samstarfsaðila þeirra eins og Neyðarlínunnar og fleiri aðila sem hefur skilað sér mjög í auknu trausti sem aftur skilar sér í enn fleiri kærum. Það er það umhverfi sem við viljum laða fram. Við höfum líka tekið fleiri skref og það er mjög fróðlegt að fara inn á vefinn 112.is og skoða þar einmitt þessi úrræði, hvernig fólk getur sett sig í samband, ekki endilega með því að hringja heldur í spjalli og hvernig kynningin snýr að ungu fólki og börnum og hvernig lögreglan er núna að fara inn í skólana og síðan það samfélagsátak sem við höfum hleypt af stokkunum á þessu ári til að auka meðvitund um að við séum öll á vaktinni þegar kemur að þessum alvarlegu brotum. Já, fjármagnið var aukið verulega á þessu ári og það er fagnaðarefni og sýnir hug ríkisstjórnarinnar til þessa mikilvæga málaflokks. Það mun skila sér síðar á þessu ári í aukningu á fjölda lögreglumanna sem sinna þessum verkefnum. Við búum því miður við það að málsmeðferðartíminn er of langur. Ég hef líka lagt fram frumvarp sem snýr að réttindum brotaþola sérstaklega í þessum málum sem gjörbreytir þeirra stöðu og ég vona svo innilega að þingið nái að afgreiða það mál fyrir vorið, að um það geti náðst samstaða, þó að ég viti að það séu deilur um ákveðin atriði, en ég vona að þingið taki það til málsmeðferðar. Það krefst mikillar þjálfunar og sérþekkingar að fara inn í þessi mál, þú tekur ekki lögreglunema beint úr skólanum, nýútskrifaða, það þarf að þjálfa þá upp. Þessi vinna er í gangi. Við erum síðan í fjármálaáætlun líka að fá meira fjármagn og ég fagna því og ég mun reyndar leita til fjárlaganefndar og gera henni grein fyrir stöðunni og leita eftir hækkun á þeim lið alveg sérstaklega.