152. löggjafarþing — 63. fundur,  6. apr. 2022.

fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.

513. mál
[18:18]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F):

Hæstv. forseti. Við erum hér að ræða fjármálaáætlun 2023–2027. Að baki hvílir, lögum samkvæmt, fjármálastefna ríkisstjórnar sem hefur haldið um stjórnartauma frá 2017. Við verðum auðvitað að hafa í huga þá vegferð og þær áskoranir sem við höfum staðið frammi fyrir, m.a. í kjölfar heimsfaraldurs, ekki síst þegar við ræðum heilbrigðiskerfið eins og nú. Það kemur glögglega í ljós í þessari fjármálaáætlun að okkur hefur tekist á þessum viðsjárverðu tímum að verja lífskjör, kaupmátt, velferðina og opinberu þjónustuna, þar með talið heilbrigðisþjónustu. Það hefur reynt verulega á heilbrigðiskerfið allt og auðvitað fólkið sem sinnir þjónustunni og þolgæði þess. Við höfum margrætt um það hér í þessum þingsal. Við þekkjum það líka að það er ekki sjálfgefið að verja opinbera þjónustu. Við búum líka að því núna í heilbrigðiskerfinu að hafa bætt verulega í það kerfi á liðnum árum umfram raunvöxt. Ég held að það sé líka hægt að segja, virðulegur forseti, að það sé mikil samstaða um það, bæði hér á þingi og í þjóðfélaginu, að forgangsraða til velferðar.

Heilbrigðismál eru hér fyrirferðarmest í heildarumfangi útgjalda eða 31%. Samkvæmt fjármálaáætlun verða í fjárlögum ársins 2027 tæpir 335 milljarðar til heilbrigðismála en eru á þessu ári 318. Til samanburðar voru heildarframlögin 177 milljarðar árið 2016. Hér er um gífurlega aukningu að ræða, virðulegi forseti, og ég held að það dragi fram þá forgangsröðun sem ég var hér að vísa til. Fjárfesting og framkvæmdir eru fyrirferðarmiklar á tímabili þessarar áætlunar og nýi Landspítalinn sem rís, meðferðarkjarni við Hringbraut, vegur þar þyngst en fullfjármagnaðir á þessu tímabili eru u.þ.b. 92 milljarðar. Síðan eru framkvæmdir við Sjúkrahúsið á Akureyri. Legudeild, viðbygging tengigangs og uppbygging sjúkraapóteks þar hefur verið fullfjármögnuð. Á Selfossi er stefnt að því að stækka sjúkrahúsið og fjölga legurýmum og endurskipuleggja og bæta aðstöðu fyrir geðheilsuteymi og bráðamóttöku. Á tímabili fjármálaáætlunar er gert ráð fyrir að tekin verði í notkun 364 ný hjúkrunarrými og 137 verði endurbætt og við vinnum eftir samþykktri framkvæmdaáætlun.

Ef við drögum reksturinn aðeins fram þá munu áætlaðar fjárheimildir hækka úr 290 milljörðum, rétt rúmlega, árið 2022 í 316 árið 2027, á þessu tímabili áætlunarinnar. Það eru 26 milljarðar kr. sem samsvarar um 9% raunaukningu. Þar er sjúkrahúsþjónustan fyrirferðarmikil, málefnasvið 23, þar sem fjárveitingin er á þessu ári 119 milljarðar tæpir og verður 128 milljarðar árið 2027. Aftur í samhengi hlutanna voru þetta tæpir 80 milljarðar 2017 þannig að við erum búin að setja mikla aukningu inn á öllu tímabilinu. Raunaukningin er tæplega 8% á þessu tímabili. Gert er ráð fyrir útgjaldasvigrúmi sem nemur 800 millj. kr. á ári. Þá er gert ráð fyrir raunvexti sem nemur um 1,6 milljörðum kr. á ári öll árin.

Heilbrigðisþjónustu utan sjúkrahúsa, málefnasvið 24, þar er heilsugæsla og sérfræðiþjónusta en þar er raunaukningin 13,7%. Þar er um verulega hækkun í fjárhæðum að ræða jafnframt. Við höldum því áfram að styrkja heilsugæsluhlutann. Þá höldum við áfram að auka framlög til geðheilbrigðismála en þau hækka um 300 milljónir á tímabilinu til viðbótar við þær 400 sem bættust við núna 2022. Varanleg heildaraukning þar, (Forseti hringir.) svo ég vísi til þeirrar forgangsröðunar, í geðheilbrigðismál verða þá 1.650 milljónir 2025 frá árinu 2019.