152. löggjafarþing — 63. fundur,  6. apr. 2022.

fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.

513. mál
[18:23]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Frú forseti. Ég get ekki séð að í fjármálaáætlun sé gert ráð fyrir úrræðum sem nauðsynleg eru vegna öldrunar þjóðarinnar. Í fjármálaáætlun kemur fram mikilvægi þess að fjölga úrræðum til að draga úr þörf síðar en ég fæ ekki séð að þessu mikilvægi fylgi fjármunir og sýnist að engin fjölgun verði á hjúkrunarrýmum eftir árið 2024. Getur þetta staðist? Í morgun fengum við í velferðarnefnd kynningu á McKinsey-skýrslunni um framtíðarþróun þjónustu Landspítala. Þar kemur skýrt fram að nýi Landspítalinn sé nú þegar sprunginn og legurými skorti til lengri tíma ef ekki verður fjárfest í úrræðum fyrir langtímaumönnun. Fram kemur í skýrslunni að bæta þurfi við 240 úrræðum fyrir langtímaumönnunarsjúklinga, svo sem í heimaþjónustu, hjúkrunarrýmum og með endurhæfingu, því að annars blasi við stórkostlegur vandi. Í skýrslunni er fjallað um nauðsyn þess að flytja langtímaumönnunarsjúklinga frá Landspítalanum í önnur og betri úrræði. En engin plön eru um þessi önnur úrræði í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar til næstu fimm ára. Auk þess mælti hæstv. heilbrigðisráðherra fyrir heilbrigðisstefnu til 2030 fyrir aldraða á dögunum. Ég fæ ekki heldur séð að gert sé ráð fyrir að fjármagna eigi þá stefnu fram til ársins 2027 eða út áætlunartíma fjármálaáætlunarinnar.

Ég vil því spyrja hæstv. heilbrigðisráðherra hvort von sé á breytingartillögu á milli umræðna sem geri ráð fyrir fjármagni til að hrinda í framkvæmd hugmyndum til úrbóta sem fram komu í McKinsey-skýrslunni og hvort von sé á breytingartillögu sem fjármagnar heilbrigðisstefnu fyrir aldraða til ársins 2030.