fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.
Hæstv. ráðherra. Ég þakka fyrir svörin. Hér á undan fjallaði ég um ástand heilsugæslunnar í Eyjum. Staðan er ekki ósvipuð víða um land. Mér er kunnugt um að a.m.k. 4.000 íbúar í Reykjanesbæ þurfi að sækja heilsugæslu í Reykjavík. Öll þessi ferðalög íbúa á landsbyggðinni til að sækja heilbrigðisþjónustu geta varla verið þjóðfélaginu hagkvæm, enda eykst þá álag á vegakerfið og útblástur og allt það sem því fylgir. Þetta er alla vega ekki beint í samræmi við áherslur ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum.
Einnig vil ég ítreka þá kröfu okkar sem búum á landsbyggðinni að við fáum oftar sérfræðilækna í heimsókn. Þeir sjást bara ekki lengur.
En að öðru. Nú hafa margir sem glíma við langtímasjúkdóma tekið eftir því að í stað þess að sækja margar pakkningar í einu af lyfseðilsskyldum lyfjum þá er allt í einu aðeins afgreidd ein pakkning í hvert skipti sem lyf er endurnýjað. Mig langar því að spyrja ráðherra hvort þetta sé gert í hagræðingarskyni. Þá vil ég einnig spyrja hæstv. ráðherra hvort birgðastaða lyfja á Íslandi — ég hef heyrt því fleygt að tiltekin lyf séu ekki afgreidd í dag vegna stríðsástandsins. Hefur ráðherra einhverjar upplýsingar um þetta mál?