fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Halldóru Mogensen fyrir að draga athyglina að þessum mikilvæga málaflokki sem eru geðheilbrigðismál. Ég ætla bara að segja að það er rétt sem hv. þingmaður segir, það eru allar vísbendingar um að kvíði og þunglyndi hafi aukist í gegnum þessi tvö síðustu ár sem við höfum verið að kljást við heimsfaraldur. Ég fór yfir það í minni ræðu hér að við höfum sett 400 milljónir plús 100 á þessu ári til 2025, 100 bætast við á hverju ári þannig að frá 2019 eru þetta 1.650 milljónir sem eru varanlega komnar inn í kerfið til geðheilbrigðismála. Við höfum sett þverfagleg geðheilsuteymi úti um allt land sem var mjög gott skref og við erum að reyna að efla heilsugæsluna í að styðja við þá þjónustu sem var til staðar á Landspítalanum, af því að hv. þingmaður nefnir BUGL. Svo erum við að horfa til þess líka að vera með snemmtæk inngrip og reyna að virkja allt kerfið, heilsugæsluna og í skólunum, og þar vísa ég til farsældar barna, ég og hæstv. mennta- og barnamálaráðherra erum búnir að setja vinnu af stað þar. Ég er hins vegar mjög hugsi yfir þessum biðlistum, og það kemur mjög skýrt fram í greinargerð með fjármálaáætluninni, sem eru einhvern veginn að hrannast upp ofan í þetta. Ég er að reyna að sækja mér upplýsingar í ráðuneytinu um af hverju þetta gerist svona. Þetta er ekki í neinum takti við það sem við erum að reyna að gera. Ég vil bara biðja hv. þingmann um að koma með mér í lið til að komast að því (Forseti hringir.) af hverju fjölgar á biðlistunum. Ég held að það sé kannski um tvískráningar og fleira að ræða en það er talað mikið um miðlæga biðlista.