fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.
Frú forseti. Mig langar að byrja á því að segja að ég er stolt af íslenskri heilbrigðisþjónustu og ekki síst því öfluga starfsfólki sem þar starfar og vil ég nota tækifærið og þakka íslenskum heilbrigðisstarfsmönnum fyrir að hafa staðið vaktina í gegnum gríðarlega flóknar aðstæður í heimsfaraldri. En hér ræðum við fjármálaáætlun stjórnvalda. Við fjármálaáætlunargerð er mikilvægt að allar upplýsingar liggi fyrir þegar sérfræðingar ráðuneyta leggja á það mat hversu mikið fjármagn þarf í hvern málaflokk. Í fjölmiðlum í dag er fjallað um flutning skimana til heilsugæslu og mikilvægi þess að slík starfsemi sé í höndum ríkisins. Það kemur m.a. fram, með leyfi forseta, að varhugavert sé að hagsmunasamtök móti lýðheilsustefnu. Ég hef bent á þetta í nokkurn tíma hvað varðar stöðu meðferðarmála fólks með fíknivanda. Mér finnst það ákaflega sérstakt að þeir sem ríkið kaupir af þjónustu til að sinna ákveðnum þáttum íslenskrar heilbrigðisþjónustu geti sjálfir metið kostnað og stöðu í málaflokkunum og kallað svo eftir fjármagninu.
Mig langar því að spyrja ráðherra hver afstaða hans er gagnvart því að aðilar sem eru að veita þjónustu segi ríkinu hvað þurfi af peningum í það án þess að eftirlit sé þar af hálfu ríkisins. Við höfum reynt að ná saman lengi um stöðu heildarúttektar á meðferðarmálum hér á Íslandi en höfum ekki náð því enn þá. Ef ráðherra hefur tíma væri gott ef hann segði mér aðeins frá þeirri stöðu.