fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Mig langar þó að fylgja þessu aðeins eftir. Það er þannig að þetta fer í gegnum Sjúkratryggingar en við höfum séð að það eru brotalamir. Ég dreg ekki í efa að innan SÁÁ og annarra meðferðarstofnana hér á Íslandi er gríðarleg þekking, þar er fagmennska, þar er reynsla. En það er ekki það sem ég er að benda á. Ég er að benda á það, og við getum t.d. horft á Reykjalund í því samhengi, að það er ekki eðlilegt að nauðsynleg heilbrigðisþjónusta sé rekin af hagsmuna- eða áhugamannafélögum og standi einhvern veginn algerlega til hliðar við alla aðra þjónustu. Ég held að það færi best á því, og ég vísa í Reykjalund, að sjúkrahúsið Vogur væri skilgreint sem ehf., sem sjúkrahús sem ríkið gerði þá samning við um heilbrigðisþjónustu. Þá geta hagsmunasamtökin rekið aðra starfsemi eins og hvert annað góðgerðarfélag gerir, safnað fjármunum og annað. En það er óeðlilegt og það hefur sýnt sig, ekki bara hvað varðar fjármálin heldur annað er lýtur að þjónustu við sárveika einstaklinga, að aftur og aftur höfum við séð að brotalamir hafa verið á þjónustunni. Ég held að það sé bara ábyrgðarhluti, og þess vegna biðla ég til ráðherra, að áður en við veitum enn og aftur mikið fjármagn í hvaða heilbrigðisþjónustu sem er, sé byrjað á því að skilgreina þörfina, skilgreina verkferlana, og fjármagni sé svo úthlutað eftir því.