fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.
Virðulegur forseti. Við stöndum hér og ræðum fjármálaáætlun til næstu fimm ára og þá sýn sem á að birtast okkur í henni varðandi bæði tekjur ríkissjóðs og afkomu ríkissjóðs, en ekki síður hvaða þjónustu er reiknað með að veita á þessu tímabili. Við erum hér að tala um málaflokkinn heilbrigðismál, sem skiptir okkur auðvitað einna mestu máli af öllum þeim málaflokkum sem hér eru undir. Ég þreytist ekki á að ræða hjúkrunarheimili og þau hafa svo sem verið nefnd hér. Við erum að skoða ferlið um hvernig við þjónustum eldra fólk. Við getum kannski sagt að við byrjum á forvirkum aðgerðum. Við förum síðan í heimahjúkrun í framhaldinu. Þar á eftir kemur svo hjúkrunarheimili og síðan spítali. Við erum núna með spítala sem eru fullir af veiku fólki sem gæti verið í ódýrari úrræðum. Það liggur fyrir að dýrasta úrræðið er auðvitað spítalinn. Næstdýrasta úrræðið er hjúkrunarheimili en þar á eftir er heimahjúkrun. En það gengur auðvitað ekki að taka veikt fólk út af spítala og fara með það heim af því að það mun bara leiða til katastrófu inni á heimilunum þar sem konur munu taka á sig aukavinnu við að sinna veikum ættingjum, mæðrum eða feðrum. Þannig að ég spyr hæstv. heilbrigðisráðherra: Þarf ekki bara að spýta í? Er það ekki bara arðbært að fjölga hjúkrunarrýmum eins og kostur er?