152. löggjafarþing — 63. fundur,  6. apr. 2022.

fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.

513. mál
[19:08]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Guðbjarti Einarssyni fyrir þessa góðu umræðu. Við þekkjum það nú öll að á þessum tveimur mínútum með þennan risamálaflokk þá er það erfitt. Ég er að lesa skýrslu eftir skýrslu sem eiginlega bara segir mér það sem hv. þingmaður var að rekja hér. En ég verð nú að verja fjármálaráðuneytið. Þeir eru ekki sökudólgur í þessu. Við höfum haft góð fyrirheit um að byggja upp, eins og hv. þingmaður dró hér fram af sínu heimasvæði, en það eru alltaf einhverjir að hvísla í eyrun á mér að það þurfi að taka skóflustunguna. Það er nú kannski af því að það eru að koma sveitarstjórnarkosningar en það er bara jákvætt mál. Það er bara staðreynd að áætlanir um uppbyggingu hjúkrunarrýma fyrir aldraða hafa ekki gengið eftir eins og upphaflega var gert ráð fyrir. Það hafa orðið mjög miklar tafir á framkvæmdum víða. Og hverju er um að kenna? Það er örugglega hægt að draga fjölmargt fram, eins og við þekkjum af umræðunni, en það leysir okkur ekki undan þeirri ábyrgð að gera betur í þessu og gera þetta hraðar því að það er fólk á biðlistum þarna eins og alls staðar. Ég bara dreg það fram að um síðustu áramót voru ónýttar fjárheimildir upp á 6,3 milljarða sem áttu að vera komnir í vinnu. Þarna verðum við bara að gera betur. Það eru fjölmörg hjúkrunarheimili á teikniborðinu sem leysa mikinn vanda og leysa líka að hluta til þennan vanda sem hv. þingmaður kom inn á varðandi Landspítalann. Þetta eru allt dómínóáhrif sem eru alltaf að koma upp reglubundið sem vandi á bráðamóttöku af því að sjúklingar sem eru búnir að fá þjónustu komast ekki frá. Hér verðum við sannarlega að gera betur og við leysum mjög margt með því.