152. löggjafarþing — 64. fundur,  7. apr. 2022.

lengd þingfundar.

[10:31]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Þrátt fyrir ákvæði 4. mgr. 10. gr. þingskapa, um lengd þingfunda, er það tillaga forseta að þingfundur geti staðið lengur í dag en þingsköp kveða á um. Er óskað atkvæðagreiðslu um þá tillögu? Það er óskað eftir atkvæðagreiðslu og fer hún þá fram að loknum óundirbúnum fyrirspurnum.