fyrirkomulag við sölu Íslandsbanka.
Forseti. Nú liggur fyrir listi kaupenda í nýafstöðnu útboði á Íslandsbanka. Í útboðinu var hópi fjárfesta boðið að kaupa eignir ríkisins á afslætti. Þann 10. febrúar gaf ráðherra út greinargerð um fyrirætlanir um sölu bankans þar sem m.a. eru reifuð markmið, söluaðferð og áætlað söluferli bankans. Þann 18. mars sendi fjármálaráðherra Bankasýslunni svo bréf þar sem hann fól henni að framkvæma útboð á bréfum í Íslandsbanka, með leyfi forseta, „að höfðu samráði við ráðherra um tímasetningar, skiptingu áfanga og söluaðferðir“. Yfirlýst markmið með að veita lokuðum hópi fjárfesta þennan afslátt væri að finna trausta langtímafjárfesta sem framtíðareigendur bankans. Tekin var meðvituð ákvörðun um að veita þennan afslátt og nota lokað útboð til að laða að stofnfjárfesta sem langtímaeigendur bankans. Ráðherra sem ábyrgðaraðili þessa útboðs hefði auðveldlega getað sett reglur eða ramma um það hvernig fjárfestum skyldi hleypt að en þess í stað var um að ræða nokkurs konar villta vestur þar sem fimm sölufyrirtæki tóku kvöldstund í að hringja í sína uppáhaldsfjárfesta. Niðurstaðan er afar sundurleitur listi fjárfesta þar sem einhverjir tugir einstaklinga eru að fjárfesta fyrir brot úr prósenti.
Ég spyr því hæstv. fjármálaráðherra: Hvað breyttist frá því að ráðherra gaf út yfirlýst markmið um að finna stóra hæfa langtímafjárfesta? Hvers vegna sjáum við fjárfesta sem eru að kaupa brot úr prósenti í bankanum með afslætti? Og af hverju fá einstaklingar með vægast sagt vafasama fortíð úr bankahruninu að kaupa hlut í bankanum með afslætti?