152. löggjafarþing — 64. fundur,  7. apr. 2022.

fyrirkomulag við sölu Íslandsbanka.

[10:34]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég vil fyrst ræða það sem hv. þingmaður kallar afslátt í útboðinu og benda á það að hér fór fram sala á rúmlega 50 milljarða hlut sem jafngildir um 300 viðskiptadögum með hlutabréf í bankanum, fimmföld velta á markaði með hlutabréf í Íslandsbanka frá áramótum. Spurningin sem var uppi þennan dag var þessi: Hvert er rétta verðið fyrir sölu í dag á 22,5% hlut? Það er spurningin sem var uppi. Það fékkst svar við henni með ríkri þátttöku markaðsaðila, gríðarlega mikilli eftirspurn í útboðinu og svarið var að þeim markmiðum sem eru skrifuð út í lög og voru uppi hér í þinginu af þingnefndum og voru til grundvallar sem viðmið af minni hálfu gagnvart Bankasýslunni — þessum markmiðum öllum mátti best ná með því að gengið væri 117. Enda sjá það allir í hendi sér að ef við hefðum sett inn í Kauphöllina 50 milljarða hlut þá hefði framboðshliðin auðvitað bara leitt til þess að verð í bankanum hefði hrunið. Þegar við skoðum samanburð við önnur dæmi, við getum notað Arion banka hér innan lands eða önnur erlend dæmi, þá sjáum við að frávikið frá síðasta markaðsgengi var lítið í þessu tilviki. Þetta er aðeins um það sem hv. þingmaður kallar afslátt.

Það var engum sérstaklega hleypt að í þessu ferli heldur var það ljóst frá upphafi að þeir sem teldust hæfir fjárfestar máttu taka þátt. Hvað er hæfur fjárfestir? Það er fjárfestir sem hefur næga reynslu og þekkingu til þess að það megi selja honum án þess að það sé gefin út útboðslýsing. Allir þeir sem gáfu sig fram, lýstu áhuga á því að taka þátt í þessu útboði, sem var opinbert af hálfu Bankasýslunnar, og uppfylltu skilyrði um að vera hæfir annars vegar og voru reiðubúnir að greiða verðið sem Bankasýslan á endanum lagði til og ég samþykkti, þeir fengu að taka þátt. Enginn handvalinn. Þetta var opið útboð.