152. löggjafarþing — 64. fundur,  7. apr. 2022.

fyrirkomulag við sölu Íslandsbanka.

[10:36]
Horfa

Halldóra Mogensen (P):

Forseti. Afsláttur er fyrir stóra fjárfesta, til að laða að stórri áhættusamri fjárfestingu, ekki fyrir Lyf og heilsu til að kaupa banka eða föður fjármálaráðherra. Í fyrsta útboðinu á bankanum tapaði ríkissjóður 30 milljörðum. Í seinna útboðinu mistókst að finna hæfan framtíðareiganda en það tókst að selja föður fjármálaráðherra hlut í bankanum með afslætti ásamt fjölda manns með mjög vafasama fortíð frá bankahruninu. Að gefinni þessari reynslu, af hverju í ósköpunum ætti þingið að leyfa hæstv. ráðherra að halda áfram að selja þennan banka eða skipta sér yfir höfuð af ríkissjóði?