fyrirkomulag við sölu Íslandsbanka.
Virðulegi forseti. Við höfum lagt okkur fram um að tryggja gagnsæi um alla þessa meðferð. Þess vegna voru þessi samskipti við þingið og þess vegna m.a. lagði ég mikla áherslu á það, ef lög ekki hindruðu, að birta lista yfir þá sem fengu úthlutun í þessu útboði. Um það giltu almennar reglur. Ég vil vekja athygli á því, af því að hv. þingmaður hefur skoðanir á einstökum kaupendum og telur þá misvel til þess fallna að fara með eignarhlut í fjármálafyrirtæki, að lög kveða á um það að ef einstaklingar eða lögaðilar vilja fara með virkan eignarhlut, eins og það heitir í lögum, yfir 10%, þá þurfa þeir að fara í gegnum sérstakt nálarauga. Það gildir ekki fyrir smáa eignarhluti. Þar gilda aðrar reglur. Ég ætla að segja þetta um framhaldið: Vegna þeirrar gagnrýni sem fram hefur komið þá held ég að það sé langbest til þess að tryggja einmitt að það sé ekkert í skugganum og það sé bara vel farið yfir þá framkvæmd sem við höfum hér nýgengið í gegnum að við fáum Ríkisendurskoðun til að taka út framkvæmd útboðsins (Forseti hringir.) og fara yfir það fyrir þingið með hvaða hætti lög og fyrirmæli voru (Forseti hringir.) framkvæmd við þetta útboð. Ég tel, miðað við það sem ég veit, að það muni koma vel út fyrir alla framkvæmdina.