sala ríkisbanka.
Herra forseti. Ég hef oft gagnrýnt þær aðferðir sem þessi ríkisstjórn, og reyndar forveri hennar, kaus að fara við að vinna úr þeim gríðarlega miklu eignum sem fólust í verðmæti bankanna sem ríkið yfirtók, annars vegar Arion banka og hins vegar Íslandsbanka. Arion banka var skilað aftur, ef svo má segja, til vogunarsjóðanna en Íslandsbanki seldur að stórum hluta en þó án þess að stjórnvöld notuðu tækifærið til að gera þær grundvallarbreytingar sem eru þarfar á fjármálakerfinu á Íslandi þannig að það virki betur fyrir fyrirtæki og sérstaklega fyrir almenning í landinu. Þetta væri einstakt tækifæri til að endurmeta fjármálakerfið og byggja upp kerfi sem virkar betur, það hefur ekki verið nýtt til þess.
Nú sjáum við að ýmsar spurningar hafa vaknað um einkavæðingarferli Íslandsbanka. Því spyr ég hæstv. ráðherra: Kemur til greina, að hans mati, að breyta um kúrs hvað varðar það sem eftir er af eignarhlut ríkisins í þessum banka og fara til að mynda þá leið að afhenda öllum Íslendingum til jafns hlut í bankanum? Það myndi þýða að fjögurra manna fjölskylda fengi þar með hlut sem væri yfir milljón krónur að verðmæti og allur almenningur hefði aðkomu að fjármálakerfinu. Með þessu tapast þessar eignir ekki, þeim er skilað beint til hinna réttmætu eigenda, alls almennings á Íslandi. Kemur til greina í ljósi reynslunnar, að mati hæstv. ráðherra, að velta fyrir sér slíkum leiðum?