152. löggjafarþing — 64. fundur,  7. apr. 2022.

sala ríkisbanka.

[10:41]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég hef stundum spurt mig hvað hv. þingmaður er nákvæmlega að fara þegar hann talar um að gera uppstokkun í fjármálakerfinu og láta það betur þjóna þörfum almennings. En við höfum verið að endurskrifa allt regluverk um bankana og það er gjörbreytt. Við höfum þar fylgt Evrópufordæmi og samlagað íslensku löggjöfina að því sem þar gerist. En hér er spurt um það hvort ég telji koma til greina að fara aðrar leiðir. Ég hef sagt það nú þegar, og við ræddum það reyndar fyrir þetta útboð sem nú er nýafstaðið, að ég teldi vel koma til greina og við ættum að halda því opnu að fara aftur í almennt útboð. En sú leið að afhenda Íslendingum beint eignarhlut í ríkisbanka er nokkuð sem ég hef lengi talað fyrir. Ég hef ekki náð samstöðu um það með samstarfsflokkum eða öðrum hér á þinginu til að hrinda því í framkvæmd og ég hef svo sem alveg verið sáttur við það að við færum fyrst þessa leið skráningar og við myndum losa um ríkiseignina, fá gott verðmat á bankann, sem hefur tekist frábærlega. Þetta er eign sem ríkissjóður tók yfir án endurgjalds, 95% hlutur í bankanum. Við höfum nú gert úr honum yfir 270 milljarða virði og höfum þegar selt fyrir 100 milljarða, fengið 72 milljarða í arð og eigum eftir eignarhlut, erum enn langstærsti eigandinn að bankanum, með 42,5% sem er yfir 100 milljarða virði. Í ljósi þess hversu mikið virði bankans hefur hækkað í höndum ríkisins, þó ekki væri nema bara frá almenna útboðinu þegar bankinn var metinn í kringum 150 milljarða en núna yfir 250 milljarða, þá finnst mér það vel koma til greina að við ráðstöfum hluta ávinningsins af hækkun á markaðsvirði bankans beint til Íslendinga. En við þurfum að ræða það betur og ekki er út frá því gengið í því söluferli sem þegar hefur verið samþykkt hér af Alþingi.