152. löggjafarþing — 64. fundur,  7. apr. 2022.

sala ríkisbanka.

[10:43]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Herra forseti. Þetta þykja mér mikil tíðindi. Ég vissi að ágreiningur væri innan ríkisstjórnarinnar um allt mögulegt en ég vissi ekki að hæstv. fjármálaráðherra hefði átt í erfiðleikum með að fá menn til að samþykkja þessa hugmynd og kosningastefnu Miðflokksins um að afhenda hlut í Íslandsbanka beint til almennings í landinu. Ég er því sáttur við svarið og ætla ekki að koma hæstv. ráðherra í nein frekari vandræði gagnvart samstarfsfólki sínu í ríkisstjórn. Ég vona að honum takist einfaldlega að sannfæra það um gildi þessarar hugmyndar, þessarar stefnu, og hef því ekki frekari spurningar fyrir hæstv. ráðherra að sinni.