sala ríkisbanka.
Virðulegi forseti. Já, það eru dæmi um að samhljómur sé með stefnu Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins. Þarna er kannski eitt dæmi. Ég minnist þess að við ræddum þetta á landsfundi Sjálfstæðisflokksins á sínum tíma og höfum talað fyrir þessu fyrir kosningar og síðan má kannski segja að ég hafi ekki gert það að úrslitaatriði við stjórnarmyndun að við færum þessa leið en við höfum ekkert lokað endanlega samtalinu um söluferlið. Þó er það þannig að allar heimildir eru til staðar hér á þinginu, í lögum, til að klára sölu á bankanum. Ef við færum þá leið myndi ég segja að það kallaði á sérstaka umræðu hér í þinginu og þar væri kannski álitamálið ekki síst það hversu stórum hluta af því sem eftir stendur við myndum ráðstafa með þessum hætti. En það hefur verið út frá því gengið, samanber greinargerð Bankasýslunnar, að við myndum kannski frekar fara hefðbundnari leiðir, fleyta þessu í gegnum markaðinn, fara í almennt útboð eða aðrar þekktar leiðir.