staða heilbrigðiskerfisins.
Virðulegur forseti. Ríkisstjórn sem getur ekki einu sinni ráðið við bankasölu, eigum við nokkuð að vera hissa á því að hún ráði ekki við heilbrigðiskerfið? Heilbrigðiskerfið á Íslandi er í algjörum lamasessi. Hjúkrunarfræðingar á bráðamóttöku Landspítalans telja ekki réttlætanlegt að þeir beri ábyrgð á öryggi sjúklinga sem er fáránlegt og einnig telja hjúkrunarfræðingar sig ekki geta sinnt starfi sínu eins og ætlast er til af þeim við þær aðstæður sem eru á bráðamóttöku Landspítalans. Þeir geta ekki tryggt öryggi sjúklinga og hvað þá starfsfólks í því umhverfi sem boðið er upp á. Stöðugildum hjúkrunarfræðinga hefur fækkað um tíu og fyrir skorti tíu stöðugildi á bráðamóttöku. Ástandið er grafalvarlegt, hættulegt fyrir sjúklinga og starfsfólk. Að verða vitni að skelfilegri fæðingu fyrir 40 árum og lesa svo um að ekkert hafi breyst í dag er stórfurðulegt og algerlega óboðlegt fyrir konur sem eru að fæða og börnin þeirra í því ástandi.
Biðlistar lengjast og lengjast og þegar fólk fær loksins aðgerð þá lendir það á biðlista — til að komast hvert? Í sjúkraþjálfun. Í þriðja skiptið er ég að koma upp og spyrja hæstv. heilbrigðisráðherra: Hvað ætlar hann að gera í sambandi við bráðamóttökuna og Landspítalann og hvenær ætlar hann að semja við sjúkraþjálfara? Er boðlegt að segja við einstakling sem er búinn að bíða í ár eða lengur eftir aðgerð — hann fær aðgerðina en hann fer á biðlista fyrir sjúkraþjálfun. Þegar hann fær sjúkraþjálfun lendir hann í þeim stórfurðulegu aðstæðum, sem svo margir hafa lent í undanfarið og bent mér á, að hann hefur ekki efni á því vegna þess að hann þarf í dag að borga allt upp í 20.000 kall á mánuði aukalega fyrir sjúkraþjálfun sem er búið að velta úr kerfinu. Svo kemur þessi ríkisstjórn og hælir sér af því að það sé gjaldfrjálst í kerfinu. En þeir eru búnir að færa ákveðið gjald af (Forseti hringir.) einum stað yfir á annan.
Ég spyr hæstv. ráðherra: Hvað á ég að segja við það fólk sem hefur ekki efni á þessu? (Forseti hringir.) Á ég að segja við það þegar það kemst ekki til sjúkraþjálfara: (Forseti hringir.) Farið á bráðamóttökuna?