152. löggjafarþing — 64. fundur,  7. apr. 2022.

staða heilbrigðiskerfisins.

[10:48]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F):

Hæstv. forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Guðmundi Inga Kristinssyni fyrir spurningarnar. Hann setti þetta í fjölþætt samhengi og kristallaði þau verkefni og þann vanda, getum við kallað, sem við erum að kljást við í heilbrigðisþjónustu og ég gengst alveg við því. Verkefnin eru ærin. Margt af því sem hv. þingmaður kom hér inn á tengist öryggi sjúklinga. Það hefur verið mikið til umræðu og á auðvitað alltaf að vera til umfjöllunar, við viljum tryggja hér öryggismenningu og gæta að öryggi sjúklinga sem eru hjartað í kerfinu okkar. Til að bæta verkferla og vinnulag — og nú er það hjá embætti landlæknis að skoða alvarlegu tilvikin sem upp koma — þá er slík umræða af hinu góða. Til hvers? Til að fyrirbyggja að slíkt gerist. Hv. þingmaður kom inn á umræðu sem snýr að öryggi og fæðingum og til eru skýrslur um alþjóðlegan samanburð á því sviði og ég vil vekja athygli á því að við erum mjög framarlega á því sviði þegar kemur að fæðingum, fæðingarþjónustu, ungbarnavernd og mæðravernd. Þar erum við mjög framarlega og við megum heldur ekki gleyma því hvað við gerum vel. Þá eru það samningarnir. Það er hægt að fagna því hér að við erum búin að semja við hjúkrunarheimilin til fimm ára, sem eru tímamót. Það er hluti af þessari stóru mynd af þeim útskriftarvanda sem hv. þingmaður kom inn á og sem birtist okkur reglulega á bráðamóttöku og hefur gert allt of lengi, þegar bráðamóttakan breytist í legudeild. Það snýr líka að öryggi (Forseti hringir.) og ég tek fulla ábyrgð á því. Við erum að leita lausna á hverjum einasta degi á því. (Forseti hringir.) En ég þarf að koma að frekari samningum í seinna andsvari.