staða heilbrigðiskerfisins.
Virðulegur forseti. Þetta voru dýr svör því að staðreyndirnar tala sínu máli. Einn af hverjum tíu sem leggst inn á spítala lendir í einhverri áhættu. Ég spyr mig: Hvað hefur verið gert undanfarin ár af þessari ríkisstjórn? Forveri heilbrigðisráðherra kom á því stórfurðulega kerfi að neita að semja við sjúkraþjálfara og sérgreinalækna. Ég spyr mig: Hver ræður? Eru það Sjúkratryggingar Íslands sem stoppa þetta? Ræður ráðherrann ekki? Hvers vegna er ekki samið? Og hvernig er hægt að segja við sjúkraþjálfara að þeir fái ekki launahækkun eins og aðrir hafa fengið heldur eigi þeir bara að sætta sig við launalækkun? Er það það sem strandar á? Ég skil ekki hvernig í ósköpunum, á sama tíma og við getum selt banka með allt að 30 milljarða afslætti, við getum ekki einu sinni séð til þess að fólk sé ekki í lífshættu inni á sjúkrahúsi.