staða heilbrigðiskerfisins.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir tækifærið til að fara yfir þessi fjölmörgu verkefni sem við erum að kljást við og hann dregur það bara mjög skýrt og greinilega fram. Ég hef sagt það hér og vil segja það helst á hverjum degi að öryggiskennd sjúklinga, öryggismenningin, ekki síður starfsfólks í þessu gagnkvæma sambandi, með þessa viðkvæmu þjónustu, er sennilega það dýrmætasta sem við eigum í heilbrigðisþjónustunni. Það er það sem við þurfum alltaf að vinna að og þess vegna þurfum við að styrkja ferla o.s.frv. Það kom út mjög góð skýrsla árið 2015 sem snýr m.a. að réttarstöðu starfsfólks. Þar eru mjög góðar tillögur og ég hvet alla til að lesa þá skýrslu. Hún er mjög góð. Ég skipaði starfshóp fyrir margt löngu til að taka upp þráðinn og vinna að þessum málum.
Varðandi samningana þá hef ég lagt mig fram um það — vegna þess að ef við ætlum að takast á við allt það sem hv. þingmaður fer yfir hér þá verðum við að efla samspilið og samvinnuna í kerfinu, (Forseti hringir.) nýta sérgreinalæknana, nýta sjúkraþjálfarana í endurhæfingunni, sem er stór hluti af forvörnum. Ég er að vinna að því hörðum höndum (Forseti hringir.) að ná saman við þessar ágætu starfsstéttir.