152. löggjafarþing — 64. fundur,  7. apr. 2022.

val á útboðsaðilum við sölu Íslandsbanka.

[10:53]
Horfa

Kristrún Frostadóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Nú þarf fjármálaráðherra að sýna pólitíska forystu í þessu máli. Þjóðin er búin að missa trú á söluferlinu á Íslandsbanka. Það þarf að fara almennilega ofan í þetta ferli. Hvers vegna í ósköpunum fengu aðilar frítt spil til að selja almenningseign á afslætti til spákaupmanna, söluaðilum borgaðar himinháar þóknanir fyrir að hjálpa erlendum spákaupmönnum að skotgræða á ríkiseign? Óljóst er hvernig kaupendur voru valdir og að öllu leyti óskiljanlegt hvernig það getur samrýmst framtíðarsýn um traust og trúverðugleika bankakerfisins að hleypa að aðilum með skelfilega sögu af bankarekstri. Það er eins og hæstv. fjármálaráðherra sé á sjálfstýringu. Við ræðum hér í þinginu um fjármálaáætlun þar sem er ekkert annað en framreikningur embættismanna í ráðuneytinu. Engin pólitísk forysta. Útboð á ríkiseign er stjórnlaust. Ef hæstv. ráðherra er svona áhugalaus um þetta allt saman, um sitt hlutverk og ábyrgð og getur ekki tekið pólitíska forystu í þessu máli, þá ætti hann að huga að því að hleypa einhverjum öðrum að. Það er ekki hægt að sinna einu æðsta embætti þjóðarinnar með hálfum hug. Hér er alger skortur á auðmýkt gagnvart almenningi. Valdhroki hefur umlukið þetta ferli. Fjármálaráðherra verður að draga þá til ábyrgðar sem stóðu á bak við spillinguna í þessu söluferli. Þjóðin þarf að vita hvað fór fram í samskiptum milli ráðherra, Bankasýslu og söluráðgjafa. Ég ítreka: Ef hæstv. ráðherra getur ekki sýnt forystu í þessu máli þá hefur hann ekkert erindi lengur í pólitík. Ég spyr hæstv. fjármálaráðherra: Hvað ætlar hann að gera? Hver mun sæta ábyrgð í þessu máli?