152. löggjafarþing — 64. fundur,  7. apr. 2022.

val á útboðsaðilum við sölu Íslandsbanka.

[10:58]
Horfa

Kristrún Frostadóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Það er í rauninni ótrúlegt að hlusta á þessar eftiráskýringar. Opið ferli. Það var viljandi farið í lokað útboð og almenningi ekki hleypt að vegna þess að þjóðin hélt að hér væri verið að veita ákveðnum aðilum með sterkt bakland, sterka fjárhagslega getu, trúverðugleika, aðgang að bankanum. Af hverju var ekki einhverjum 5 millj. kr. fjárfestum hleypt að? Það er fullt af fólki úti í íslensku samfélagi sem hefur 5 millj. kr. og getur keypt á markaðsverði eins og allir hinir í landinu. Þetta snýst um hvar verið er að gefa peninga. Í ofanálag voru helstu rökin fyrir þessu söluferli þau að minnka þóknanatekjur í þessu ferli, að það þyrfti ekki að hringja í hundruð manna til að selja ríkiseign. Nú kemur í ljós að þetta ferli hefur kostað 700 millj. kr., 700 millj. kr. til að hleypa að litlum fjárfestum með mjög sérstaka sögu af bankarekstri. Það er svo mikið af eftiráskýringum í þessu máli að það nær engri átt. Ég get ekki séð að ráðherra (Forseti hringir.) sé að taka forystu í þessu máli. Hann fer undan í sumum skýringum. Það er ekkert að marka það sem (Forseti hringir.) hér er sagt.