152. löggjafarþing — 64. fundur,  7. apr. 2022.

val á útboðsaðilum við sölu Íslandsbanka.

[10:59]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég vísa því bara til heimahúsanna að hér sé um einhverjar eftiráskýringar að ræða. Það er miklu frekar að hv. þingmaður sé hér með eftiráspeki. Hvers vegna var þetta ekki svona og hinsegin þegar málið var í opnu ferli og rætt við þingið og menn sendu mér skriflega sitt álit á því sem lagt hafði verið upp með af Bankasýslunni?

Ég ætla að biðja menn um að hugleiða eitt hérna. Við höfum sett upp lagaramma utan um sölu ríkiseigna í fjármálafyrirtækjum sem tryggir armslengdarsjónarmið. Ég heyri hér í þingsal og víða annars staðar lyktina af ákalli eftir pólitískum afskiptum. Þið hefðuð átt að útiloka þennan og hinn. Þið hefðuð átt að segja: Þessi er ekki hæfur. En hæfir fjárfestar í þessu útboði voru þeir sem hægt var að bjóða til þátttöku án þess að fara með útboðslýsingu. Það er svarið og hv. þingmaður veit þetta mjög vel. Það hefði kallað á útboðslýsingu að hleypa öllum almenningi að. Við gerðum það í opnu samtali hér að fara þessa útboðsleið sem er þekkt aðferð fyrir skráð fyrirtæki. Það er verið að slá ryki í augu fólks með því að segja (Forseti hringir.) að við hefðum getað klárað þetta ferli með því að bjóða hverjum sem er. (Forseti hringir.) Þá hefðum við farið allt aðra leið. Þetta ræddum við hér í þinginu og við ákváðum að gera annað.