afstaða Bankasýslunnar til upplýsinga um kaupendur Íslandsbanka.
Virðulegur forseti. Orðið orðspor kemur fyrir í öllum hugleiðingum um aðdraganda þessarar sölu. Má ekki ræða um orðsporið? Er það í alvöru þannig? Á ekki að fara fram neitt mat á því, eigum við ekki að velta því neitt fyrir okkur, þegar við erum að tala um traust og heilbrigði, heilbrigt eignarhald í lokuðu útboði þar sem menn eru handvaldir, hvert orðsporið er og hverjir það eru sem kaupa? Hitt sem hæstv. fjármálaráðherra kom inn á á síðan að gerast á eftirmarkaði þar sem ekki er veittur neinn afsláttur af eigum ríkisins í útboði af þessu tagi. Það sjá það allir í hendi sér að það er mikill munur á þessu tvennu. Og svo koma þessir orðaleppar sem hér eru nefndir aftur og aftur til að drepa málum á dreif. Það er ekki talað um afslátt. Stjórnarformaður Bankasýslunnar talar um frávik. Þetta er frávik en ekki afsláttur, eins og niðurstaðan, þegar verið er að selja eigur þjóðarinnar, sé ekki sú sama. Eigum við ekki að ræða um orðspor? Eigum við ekki að ræða um heilbrigði og heilbrigt eignarhald? Eigum við að gera greinarmun á lokuðu útboði þar sem menn eru handvaldir og því sem gerist síðan á eftirmarkaði? Þar er ríkið búið að sleppa höndunum. Það sleppir ekki í höndunum í útboðinu sjálfu. Þessar skýringar hæstv. fjármálaráðherra sem koma fram eftir að þessi makalaust listi er birtur — þar sem meira að segja framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar fær að kaupa fyrir rúma milljón með fráviki eða afslætti. Eigum við ekki að spyrja spurninga um þetta? Eigum við ekki að tala um að þetta sé eðlilegt eða óeðlilegt? Er það bannað?