afstaða Bankasýslunnar til upplýsinga um kaupendur Íslandsbanka.
Virðulegi forseti. Það er sjálfsagt að ræða þetta. Hver er að stoppa umræðuna? Það sem hv. þingmaður gerir er að hann fellur á prófinu þegar hann segir handvaldir, þegar hann segir útvaldir. Það er þar sem hann fellur á prófinu og allt sem hann segir eftir það er ómarktækt vegna þess að hér var enginn handvalinn. Það sem var ákveðið að gera var að segja: Hæfir fjárfestar geta tekið þátt. Það er sala sem stendur yfir núna. Allir sem buðu gátu fengið að vera með eftir almennum reglum, enginn handvalinn, eingöngu þeir sem gáfu tilboð komu til greina og þeir þurftu að uppfylla skilyrði um verð og að vera hæfir fjárfestar. Þannig að hvar er handvalið, hv. þingmaður? Sá sem heldur þessu fram er að reyna að gera þetta tortryggilegt (Gripið fram í.) og þess vegna segi ég: Það er langbest að Ríkisendurskoðun fari yfir framkvæmdina í heild sinni, svari spurningum t.d. um það hvort við höfum gerst sek um að handvelja við framkvæmd þessa útboðs einstaka fjárfesta. Kannski væri ágætt líka að Ríkisendurskoðun svaraði því hvort (Forseti hringir.) framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar sé nægilega góður einstaklingur til að fá að taka þátt eins og aðrir Íslendingar. (Forseti hringir.) En hann er sem sagt á lista Viðreisnar yfir fólk sem ekki mátti vera með.