um fundarstjórn.
Herra forseti. Í framhaldi af þessari umræðu þá er það hæstv. fjármálaráðherra sem fellur á prófinu. Þjóðin þarf nefnilega traust. Við þurfum að geta treyst ráðamönnum okkar og við þurfum að geta treyst bönkunum okkar. Þegar þjóðareign er seld með góðum afslætti til útvalinna fjárfesta verður það ferli einfaldlega að vera hafið yfir allan vafa. Þessum útvöldu fjárfestum þarf að vera treystandi fyrir því að eiga banka, þeir þurfa að hafa feril og þeir þurfa að hafa orðspor sem skapar traust. Þessu kynntumst við svo vel í aðdraganda hrunsins. Það er ekki hver sem er sem getur, á eða ætlar sér að reka banka til langframa. Þegar listinn var birtur í gær þá féllust manni hendur og maður hugsaði óneitanlega um Groundhog Day. Hæstv. ráðherra þarf að gera miklu betur grein fyrir sínu máli og við þurfum að fá miklu betri svör um af hverju þeir sem keyptu fengu að kaupa.