152. löggjafarþing — 64. fundur,  7. apr. 2022.

traust við sölu ríkiseigna.

[11:10]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Virðulegur forseti. Það er með miklum ólíkindum að heyra eftiráskýringar, gaslýsingar og ruglið sem vellur upp úr fjármálaráðherra um þessa sölu. Það er ágætt út af fyrir sig að segjast ætla að kalla eftir úttekt Ríkisendurskoðunar en ég tel það ekki nóg. Í ljósi þess að þingið veitir þessum ráðherra umboð sitt til að starfa í okkar þágu og selja þennan banka eins og hann gerir, í ljósi þess að þingið fer með eftirlitshlutverk gagnvart þessum ráðherra, tel ég rétt að þingið skipi rannsóknarnefnd, óháða og sjálfstæða rannsóknarnefnd, sem fer yfir þessa einkavæðingu í öllum smáatriðum. Til þess verði valdir sérfræðingar sem hafa fulla getu og traust til að sinna þessu starfi fyrir hönd þingsins. Ég geri þetta að tillögu minni. Ég legg til að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd skoði hvernig þessu megi best verða við komið sem fyrst.