152. löggjafarþing — 64. fundur,  7. apr. 2022.

traust við sölu ríkiseigna.

[11:11]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf):

Hæstv. forseti. Ég kem hér upp m.a. sem formaður hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar. Ég sé bara ekki í fljótu bragði að hún sé góð sú hugmynd sem hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra lagði hér fram að Ríkisendurskoðun hefði eitthvað við þetta mál að gera. Við erum ekki að tala um fjárhagsendurskoðun, við erum ekki að tala um stjórnsýsluúttekt, við erum ekki að tala um framkvæmd laga eða fjárreiður staðfestra sjóða, við erum að tala um einkavæðingu, útboð, sölu á ríkiseignum. Þess vegna styð ég það sem hv. þm. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir lagði hér fram, að við stofnum um þetta mál sérstaka rannsóknarnefnd sem er á vegum Alþingis og hefur allar þær lögboðnu heimildir sem þingið þarf að hafa til að komast til botns í málinu. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)