traust við sölu ríkiseigna.
Virðulegur forseti. Ég tek undir það sem hér hefur farið fram og ég spyr mig: Er skammtíma- og langtímaminni ríkisstjórnarinnar algjörlega horfið? Ég spyr: Hvaðan koma peningarnir hjá þessum fyrrverandi hrunbankamönnum til að kaupa? Tortóla, Cayman eða eru þeir kannski að fá kúlulán? Við þurfum að fá svar við því. Hvernig í ósköpunum getum við, eftir allt sem áður skeði í bankahruninu, leyft hlutum að fara á þennan veg? Þetta er okkur til háborinnar skammar. Þessi ríkisstjórn getur ekki selt einn banka skammlaust. Maður verður stundum alveg kjaftstopp. Þegar maður stóð hérna úti á Austurvelli, mótmælti og mótmælti og mótmælti eftir bankahrunið hafði maður trú á því að við myndum læra eitthvað en við sjáum það hér að við lærðum ekki neitt. Við verðum að fá það á hreint hvernig þessi sala fór fram.