traust við sölu ríkiseigna.
Forseti. Ég tek undir beiðni um að hér fari fram alvörurannsókn á þessu máli því að það er ekki hægt að við göngum í gegnum allt sem við höfum gengið í gegnum sem samfélag en við virðumst ekki læra neitt af því sem hefur gengið á. Ef maður skoðar bara lista yfir hrunkaupmennina í þessum banka núna; Jón Ásgeir Jóhannesson, stærsti eigandi í Glitni fyrir efnahagshrunið, Þorsteinn Már Baldursson, forstjóri Samherja og stjórnarformaður Glitnis, Benedikt Sveinsson, faðir Bjarna Ben. sem forðaði 500 milljónum úr Glitni fyrir hrun. Við erum að gera sömu mistökin aftur og aftur. Við verðum að rannsaka þetta og ég kalla eftir þessari rannsókn. Mig langar líka til að benda á að ábyrgð fjármálaráðherra í þessu öllu saman er að hann hefði getað farið fram á að það yrði skrifað inn í uppboðið frekari leiðbeiningar um hvers konar fjárfesta ætti að sækja til að kaupa í þessum banka. En það var ekki gert og þetta er niðurstaðan.