traust við sölu ríkiseigna.
Virðulegi forseti. Ég get ekki orða bundist; enginn handvalinn? Þetta var opið útboð, sagði fjármálaráðherra. Þarna er ráðherra beinlínis að villa um fyrir Alþingi. Við þurfum ekkert að leita lengra en til Bankasýslunnar sjálfrar, bara í minnisblað frá henni. Hérna er umfjöllun um þá leið sem ráðherra kaus að fara:
„[Slíkt] fyrirkomulag er ekki að fullu í anda meginregla laga nr. 155/2012, um opið söluferli og gagnsæi. Þannig njóta ákveðnir fjárfestar betri réttinda en aðrir ásamt því að almenningur getur ekki tekið beinan þátt og þar með ekki tryggt fullt jafnræði bjóðenda.“
Þetta segir Bankasýslan. En hingað kemur hæstv. fjármálaráðherra, nýbúinn að selja pabba sínum ríkiseign, nýbúinn að selja viðskiptafélögum sínum frá útrásarárunum eignir almennings, nýbúinn að selja fólki með dóma fyrir efnahagsbrot á bakinu, nýbúinn að selja sakborningi í umfangsmiklu mútubrotamáli eignir almennings, og segir okkur að svart sé hvítt og hvítt sé svart og þessum þvættingi eigum við bara að sitja undir. Heldur hann að við séum öll bara einhverjir hálfvitar? Eða veit hann bara að hann er vel valdaður af þingmönnum Framsóknarflokksins, Vinstri grænna og auðvitað Sjálfstæðisflokksins, sem leyfa honum að komast upp með þetta?
Virðulegi forseti. Alþingi á betra skilið og almenningur á betra skilið. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)