traust við sölu ríkiseigna.
Herra forseti. Ég vil taka undir þá tillögu sem hér hefur komið fram um að rannsaka þetta mál. Við hér inni verðum að fá skýr svör við því hvers vegna þessir sjóðir og þessir einstaklingar fengu að kaupa hluti á afslætti í bankanum í lokuðu útboði. Hvers vegna þetta fólk? Einhverjir þeirra hafa sannarlega reynslu af bankarekstri líkt og sárar minningar almennings eru um. Hvernig var sú reynsla metin?
Forseti. Mín reynsla er sú að þegar eitthvað lítur út eins og spilling, sem lyktar eins og spilling, þá er það líklegast spilling.