152. löggjafarþing — 64. fundur,  7. apr. 2022.

traust við sölu ríkiseigna.

[11:29]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Mér finnast þetta svo óhugguleg orð hæstv. fjármálaráðherra að hann talar um lista Viðreisnar í samhengi við gagnrýni og spurningar um það hvernig þetta átti sér stað. Það speglar, að mér finnst, hugarheim manna sem lifa í þjóðfélagi handvalinna og útvalinna, að spurningin komi alltaf úr annarlegri átt. Og nú er það stjórnarandstöðunni að kenna það sem er á ábyrgð hæstv. fjármálaráðherra. Ferlið átti að þjóna hagsmunum almennings í landinu. Það var talað um stóra fjárfesta, fagfjárfesta, ferli í þágu almennings í landinu. Allt uppi á 10, segir hæstv. fjármálaráðherra í dag, 10,5 jafnvel. Hvers vegna er það þá að þjóðin vaknar í áfalli þegar listinn liggur fyrir, þegar forsendurnar birtast almenningi? Hvers vegna eru viðbrögðin þessi? Þetta er allt einhvern veginn með miklum ólíkindum; að leggja myndina á borð eftir á og tala svo um það að stjórnarandstaðan hafi ekki sinnt sínu hlutverki.