152. löggjafarþing — 64. fundur,  7. apr. 2022.

traust við sölu ríkiseigna.

[11:30]
Horfa

Óli Björn Kárason (S):

Herra forseti. Hér hafa mörg orð, sum stór, verið látin falla. Margir telja sig þess umkomna að fella dóma. Ég ætla ekki að skera úr um það. Ef það er þannig að þingheimur telur að það sé ekki nægjanlegt að Ríkisendurskoðun, embætti sem heyrir undir Alþingi, er á ábyrgð og í umboði Alþingis, fari yfir þessa sölu heldur þurfi að skipa sérstaka rannsóknarnefnd til að fara yfir söluferlið í þessu útboði þá mun ég styðja það. Það er bara fullkomlega eðlilegt vegna þess að það er ekkert sem ég óttast í slíkri rannsókn. Ekkert. Ég ætla að minna þingheim á að þær upplýsingar sem hér valda mestu uppnámi eru til komnar og hafa verið gerðar opinberar vegna þess að hæstv. fjármálaráðherra (Forseti hringir.) knúði þær sjálfur fram (Forseti hringir.) þrátt fyrir andstöðu eða ráðleggingar Bankasýslunnar sem sá um og ber ábyrgð á þessu útboði. (Gripið fram í: … Bankasýslunnar … )