traust við sölu ríkiseigna.
Virðulegur forseti. Ég vil nú taka undir það sem kom fram hjá hv. þm. Loga Einarssyni um að það væri voðalega áhugavert að heyra allt um það hvað öðrum þingmönnum stjórnarinnar, öðrum en ráðherra og hv. þm. Óla Birni Kárasyni, finnst um þessa sölu. Ég held að þeir skuldi almenningi alveg ágætisútskýringar út í samfélagið. Kannski gæti leiðarstef þeirra verið það sem sagt var fyrir nokkrum árum af öðru tilefni.
„Það er alveg augljóst og ætti að vera mönnum ljóst, að það er engin þolinmæði fyrir því í íslensku samfélagi að það fái einhverjir að sitja að sérkjörum þegar að menn eru að höndla með verðmæti. Og í þessu tilviki þá er það mjög sterk upplifun manna að það hafi fáir útvaldir fengið að búa að sérkjörum.“
Þetta sagði Bjarni Benediktsson þegar var verið að selja hluta í Símanum. Þetta eru orð sem eiga mjög vel við núna. Þegar talað er um að hér hafi fallið stórir dómar þá hefur Alþingi eftirlitshlutverki að gegna. Það er okkar að meta hvort það sem sagt var, því sem lofað var, það sem almenningi var selt í þessari sölu, (Forseti hringir.) hafi staðist. Það gerðist bara (Forseti hringir.) því miður í gær þegar listinn var birtur að efndirnar voru allt aðrar og ekki í neinu samhengi við það sem lagt var upp með, ekki neinu.