152. löggjafarþing — 64. fundur,  7. apr. 2022.

traust við sölu ríkiseigna.

[11:38]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Þegar eini stjórnarþingmaðurinn, sem tjáir sig hér í salnum um þetta mál, segir að hann ætli ekki að standa hér og fella neina dóma, hann ætli ekki að standa hér og spyrja neinna spurninga, þá segi ég: Hér er að falla innanhússmet í meðvirkni. Það er hlutverk þingsins að spyrja spurninga þegar lagt er upp með ákveðnar forsendur, en niðurstaðan speglar einhverjar allt aðrar forsendur. Það er sérstakt og kannski er það bara til marks um að hér sé enn ein vikan á skrifstofunni hjá stjórnarliðinu, ef maður horfir á það hvernig dagskráin hefur verið. Þingmenn í stjórnarliðinu tjá sig helst ekki. Þeir tala svo lítið hér í þessum sal að þegar við þingmenn í stjórnarandstöðu sinnum okkar hlutverki þá upplifa þeir það sem málþóf. Það er eins og þeir haldi að það sé bannað að stíga hér upp í púlt til að tala fyrir sínum hugmyndum og hugsjónum. Stígið þið fram, kæru bræður og systur.