152. löggjafarþing — 64. fundur,  7. apr. 2022.

traust við sölu ríkiseigna.

[11:39]
Horfa

Halldóra Mogensen (P):

Forseti. Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins kom hér upp áðan og sagðist styðja þessa hugmynd um rannsóknarnefnd, sem er bara gott mál. En fulltrúar hinna stjórnarflokkanna eru þar með orðnir eina fólkið sem virðist ekki standa með þessu eða hefur alla vega ekki tjáð að þau standi með þessu. Ef þau væru í liði með okkur gætum við komið þingsályktunartillögu á dagskrá á morgun. Við getum farið í verkið núna, tekið þessa ákvörðun, komið okkur saman, þingið, um að leggja fram þingsályktunartillögu um að rannsaka þetta. Ég hvet því þingflokksformenn eða þingmenn hinna stjórnarflokkanna tveggja, Vinstri grænna og Framsóknar, að koma hingað upp og láta okkur vita hvort þeir styðji þessa hugmynd og hvort við getum farið af stað með þingmál strax, þannig að við förum ekki inn í páskafríið með þetta mál hangandi yfir okkur og allar þær spurningar sem eru í samfélaginu heldur göngum í verkið.