traust við sölu ríkiseigna.
Hæstv. forseti. Mér er bæði ljúft og skylt að koma hingað sem þingflokksformaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs því bæði hefur verið eftir því kallað en jafnframt til að segja að það hefur legið fyrir, bæði í orðum forsætisráðherra og fjármálaráðherra sjálfs, að þetta þurfi að vera algerlega gagnsætt og opið og skýrt ferli. Ef hugmynd hæstv. ráðherra um skoðun Ríkisendurskoðunar á þessu máli er ekki nóg þá tek ég heils hugar undir með þeirri hugmynd að setja á fót sérstaka rannsókn í málinu, bara heils hugar. Það er allra hagur að þetta mál sé upplýst ef einhver vafi er um ferlið þannig ég tek heils hugar undir það, svo það komi skýrt fram.