traust við sölu ríkiseigna.
Virðulegi forseti. Hér eru ákveðnar vangaveltur í gangi um að stjórnarliðar séu mállausir. Þeir eru það svo sannarlega ekki. Ég kem hingað upp sem þingmaður en einnig sem formaður efnahags- og viðskiptanefndar. Ég skil vel vangaveltur fólks hér vegna sölu á Íslandsbanka. Ég skil líka mjög vel vangaveltur fólks úti í samfélaginu vegna þessarar sölu. Það er eðlilegt og það á að vera þannig. Það á að vera gagnrýnin hugsun þegar við erum að selja eignir og sérstaklega eignir almennings og ríkiseignir. Í fyrra hófst sala á Íslandsbanka og hún tókst vel þegar 35% eignarhlutur var seldur fyrir rúma 55 milljarða. Þar voru fjórir hornsteinsfjárfestar valdir auk þess sem yfir 24.000 einstaklingar gerðust hluthafar í bankanum. Það hlýtur að vera merki um (Forseti hringir.) að fólk hafi haft áhuga á að taka þátt í þeirri fjárfestingu. Það er gríðarlega mikilvægt og með það var lagt (Forseti hringir.) af stað að eignarhald í þessum banka yrði fjölbreytt og (Forseti hringir.) það hefur tekist vel.