152. löggjafarþing — 64. fundur,  7. apr. 2022.

traust við sölu ríkiseigna.

[11:51]
Horfa

Jóhann Friðrik Friðriksson (F):

Virðulegi forseti. Mér var bent á það hér í hliðarsal af hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni að ég ræki lestina af þeim ræðumönnum sem tala hér í pontu. Ég mun að sjálfsögðu bæta úr því, m.a. með því að taka til máls um þetta mikilvæga verkefni sem hér er til umræðu um fundarstjórn forseta og vil segja það að ég hef borið fullt traust til þessa ferlis. Ég hef gert það. Ég ber líka traust til Ríkisendurskoðunar. Ég myndi halda að sú tillaga sem fjármálaráðherra kom hér upp með fyrr í dag ætti að vera fyrsta skref. En ég er jafnframt að sjálfsögðu, eins og ég hef sagt hér áður, opinn fyrir því að þingið taki málið í einhverjar aðrar áttir og mun heils hugar styðja það, enda mikilvægt þegar banki í eigu ríkisins er seldur, þegar horft er til þess sem á undan er gengið í þeim hrakförum sem hér voru fyrir tíu árum síðan, að við eyðum allri tortryggni um þetta mál.