152. löggjafarþing — 64. fundur,  7. apr. 2022.

fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.

513. mál
[12:01]
Horfa

félags- og vinnumarkaðsráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (Vg):

Virðulegi forseti. Í fjármálaáætlun heyra fjögur málefnasvið undir félags- og vinnumarkaðsráðuneyti, þ.e. málefnasvið 27–30 og að auki er málaflokkur vegna þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd á málefnasviði 10, málaflokkur framhaldsfræðslu sem tilheyrir málefnasviði 22, önnur skólastig, og stjórnsýsla félagsmála á málefnasviði 32.

Á málefnasviði 27, um örorku og málefni fatlaðs fólks, er lýst því meginmarkmiði að öll þjónusta og stuðningur stuðli að því að fatlað fólk, fólk með örorku eða skerta starfsgetu, geti lifað innihaldsríku og sjálfstæðu lífi. Mikilvægt verkefni í stjórnarsáttmála er að einfalda örorkulífeyriskerfið svo það verði skilvirkara, gagnsærra og réttlátara og afkoma örorkulífeyrisþega verði bætt með það að markmiði að bæta sérstaklega kjör þeirra sem lakast standa. Stefnt er að því að gera þetta í áföngum á kjörtímabilinu og er undirbúningur þegar hafinn í ráðuneytinu. Fyrsta skrefið var stigið um síðustu áramót þegar 1% viðbótarhækkun varð á greiðslum til örorkulífeyris- og endurhæfingarlífeyrisþega og samhliða því var fjármagn veitt til úrbóta á réttindakerfinu til að koma í veg fyrir svokallað fall á krónunni. Sú aðgerð mun tryggja aukinn fyrirsjáanleika réttinda til lífeyris þeirra sem hafa atvinnutekjur, aukið jafnræði og minna frávik við uppgjör. Næsta skref er að vinna að auknu framboði á fjölbreyttum störfum, bæði hlutastörfum og sveigjanlegum störfum, fyrir fólk með skerta starfsgetu. Aðkoma ríkis, sveitarfélaga, aðila vinnumarkaðarins og hagsmunasamtaka að þessari vinnu er mikilvæg en tilraunaverkefni hefjast á árinu 2022 og fjármagn hefur verið tryggt frá og með árinu 2023 í þetta skref. Nánar verður gerð grein fyrir fjármögnun heildarendurskoðunar kerfisins í næstu fjármálaáætlun.

Þá vil ég nefna að tímabundin fjárveiting að fjárhæð 320 millj. kr. vegna NPA-þjónustu hefur verið gerð varanleg í ramma en umsýsla vegna NPA færist að óbreyttu alfarið til jöfnunarsjóðs á næsta ári.

Í samræmi við stjórnarsáttmálann verður farið í heildarendurskoðun á þjónustu við eldra fólk og verður það gert í samstarfi félags- og vinnumarkaðsráðuneytis og heilbrigðisráðuneytis. Á árunum 2022–2025 verður varið 200 milljónum til að vinna áfangaskiptar tillögur með það að markmiði að bæta lífsgæði eldra fólks með markvissri, samþættri og einstaklingsmiðaðri félags- og heilbrigðisþjónustu og áherslu á aukna lýðheilsu. Samfélagslegur ávinningur af slíkum breytingum er verulegur en fyrir utan aukin lífsgæði eldra fólks eru miklir fjárhagslegir hagsmunir af því að fjölga þeim einstaklingum sem virkan þátt taka í samfélaginu og þurfa síður eða seinna en ella að búa á hjúkrunarheimilum. Jafnframt þarf að meta árangur af þeim aðgerðum sem gerðar hafa verið til að bæta kjör aldraðra á undanförnum árum og bera kennsl á þá þætti sem betur mega fara. Stýrihópur þvert á ráðuneyti mun leiða þá vinnu og koma með tillögur um aðgerðir sem byggt verður á.

Um síðustu áramót tók félags- og vinnumarkaðsráðuneytið við þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd frá dómsmálaráðuneytinu. Stór og mikilvæg verkefni eru fram undan á þessu sviði og í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er kveðið á um heildstæða og skýra stefnumótun í málaflokknum sem miðar m.a. að því að fólk sem sest að á Íslandi hafi tækifæri til aðlögunar og virkrar þátttöku í samfélaginu og á vinnumarkaði. Undirbúningur þessa verkefnis er þegar hafinn í ráðuneytinu og ráðgert að vinnu við heildstæða stefnumótun í málaflokknum ljúki á næsta ári.

Helstu markmið á málefnasviði 30, vinnumarkaður og atvinnuleysi, er að draga úr fjarveru á vinnumarkaði, efla stuðningsúrræði fyrir einstaklinga með skerta starfsgetu ásamt því að stuðla að öruggari og heilsusamlegri vinnustöðum. Atvinnuleysi minnkaði hratt á síðastliðnu ári. Þessi þróun hefur verið studd hröðum efnahagsbata ásamt árangursríkum vinnumarkaðsúrræðum, samanber ráðningarstyrki í átaksverkefninu Hefjum störf, sem rann sitt skeið nú um áramótin. Störfum heldur áfram að fjölga hratt og atvinnuleysi nálgast það stig sem það var á fyrir heimsfaraldurinn. Útlit er fyrir að atvinnuleysi haldi áfram að minnka og verði komið í um 4% á tímabili fjármálaáætlunarinnar.

Endurskoðun laga um atvinnuleysistryggingar stendur nú yfir. Frumvarpi til starfskjaralaga hefur verið dreift á Alþingi og fyrir dyrum stendur að styrkja hlutverk ríkissáttasemjara við undirbúning og verklag við gerð kjarasamninga.

Stórar áskoranir eru fram undan á vinnumarkaði vegna samfélagslegra breytinga, m.a. aukinna tæknivæðingar og loftslagsbreytinga. Í því samhengi er framhaldsfræðsla mikilvæg en hún heyrir nú undir félags- og vinnumarkaðsráðuneytið. Brýnt er að taka framhaldsfræðslukerfið til endurskoðunar. Áskoranir felast m.a. í því að ná til fleiri einstaklinga og að tengja nám og þjálfunarúrræði betur við þarfir atvinnulífs og áhugasvið fólks. Fyrir dyrum stendur því stefnumótun á þessu sviði í víðtæku samráði við hagsmunaaðila. Við þá stefnumótun þarf m.a. að huga sérstaklega að fjölbreytileika markhópanna. Nær það m.a. til íslenskukennslu fyrir innflytjendur, náms fyrir fatlað fólk á öllum skólastigum og til áskoranna vegna áðurnefndra samfélagsbreytinga.