fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir umræðuna hérna í dag. Ef ég kann þessar tölur rétt þá fara um 6,8 milljarðar í rekstur Hafró í dag og veiðigjöld eru um 7 milljarðar þannig að það er ekki mikið sem ber þarna á milli, þau standa þá alla vega undir beinum kostnaði. En hér er hv. þingmaður kannski meira að ræða um veiðieftirlitið og þá skýrslu Ríkisendurskoðunar sem snýr að Landhelgisgæslunni, sem reyndar heyrir undir dómsmálaráðuneytið. Veiðieftirlit Fiskistofu er síðan á sviði matvælaráðuneytisins. En ég ætla hins vegar að fá að ræða aðeins við hv. þingmann almennt um það, sem vekur mann til umhugsunar einmitt í þessu máli Ríkisendurskoðunar, og það er olía yfir höfuð. Það eru orkuskipti. Það er eitthvað sem við þurfum að horfa til. Við þurfum að stíga stór skref núna á næstu árum þegar kemur að sjávarútveginum vegna þess að stór hluti þeirrar losunar sem Ísland ber ábyrgð á samkvæmt alþjóðasamningum kemur frá sjávarútvegi. Þess vegna skiptir það mjög miklu máli að við nýtum tímann vel núna. Það hefur gengið vel í rafbílavæðingu, það hefur gengið vel í samgöngum á landi, en næstu stóru verkefnin eru loftið, þ.e. flugvélarnar, og síðan þetta. En ég vona að ég hafi að einhverju leyti svarað hv. þingmanni en kannski sérstaklega það að Landhelgisgæslan fellur undir dómsmálaráðuneytið.