fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.
Virðulegur forseti. Við höfum rætt fjármálaáætlun fyrir árin 2023–2027 en þar horfum við til framtíðar. Vandinn er hins vegar sá að hagvöxtur hér á landi er sveiflukenndari en í flestum nágrannaríkjum okkar. Vandinn er líka sá að það er afar hæpið að hagvaxtarspá ríkisstjórnarinnar standist. Og hvar erum við þá stödd? Það þarf lítið að bregða út af svo að kaupmáttur almennings rýrni ekki verulega. Á sama tíma hækkar verð á nauðsynjum og það stefnir í að verðbólga fari úr böndunum. Áframhaldandi hallarekstur og skuldasöfnun ríkissjóðs er sjálfstætt vandamál. Ríkisstjórnin ætlar sér að halda henni áfram út kjörtímabilið og vandinn verður fluttur yfir á það næsta. Vaxtakostnaðurinn einn og sér er áætlaður um 80 milljarðar á hverju ári og 116 milljarðar þegar við teljum lífeyrisskuldbindingar með.
Aukin verðbólga og óvissa í kringum kjarasamninga gefur ekki tilefni til sérstakrar bjartsýni. Verðbólga þýðir aukna greiðslubyrði heimila og erfiðara rekstrarumhverfi fyrirtækja. Sú staðreynd að eitt af fyrstu málum ríkisstjórnarinnar hafi verið að boða þensluhvetjandi aðgerðir, sem fólust m.a. í verkefninu Allir vinna, og fara síðan í fjölgun ráðuneyta upp á 2 milljarða, var fyrirboði um að stjórnvöld hafi sofið á verðinum og ekki áttað sig á alvarleika stöðunnar. Þessi fjármálaáætlun staðfestir síðan þann grun.
Við þurfum líka að líta til einstakra þátta í áætluninni. Hvar er þörfin mest og hvernig er ríkisstjórnin að forgangsraða almannafé? Það liggur fyrir að mikil þörf er fyrir uppbyggingu hjúkrunarheimila um allt land og ekki hefur fengist fjármagn fyrir fram komnar óskir þar að lútandi. Þá má í þessu sambandi nefna hjúkrunarheimili á Höfn og í Reykjanesbæ, sem sett voru á dagskrá 2019 og átti að klára á þessu ári, en framkvæmdir hafa ekki einu sinni farið af stað. Við erum því í talsverðri skuld hvað varðar uppbyggingu hjúkrunarheimila og þess vegna kemur það á óvart að ekki hafi verið brugðist við í framkomnum óskum í fjármálaáætluninni, svo sem eins og í byggingu tveggja hjúkrunarheimila á höfuðborgarsvæðinu upp á 250 rými. Þessar óskir voru slegnar út af borðinu og komust ekki inn í fjármálaáætlun og því til viðbótar er ekki gert ráð fyrir neinum fjárfestingarheimildum til byggingar hjúkrunarheimila eftir árið 2024, sem er ekki ásættanlegt miðað við fyrirliggjandi þörf.
Það er endalaust verið að tala um vanda Landspítala og það álag sem á honum er. Skortur á hjúkrunarrýmum kemur í veg fyrir að hægt sé að útskrifa fólk í önnur þjónustuúrræði sem henta. Ekki virðist vera skilningur á þessu innan ríkisstjórnarflokkanna. Þá þarf, virðulegur forseti, ekki að fara mörgum orðum um stöðu heilsugæslunnar sem er skilgreind sem fyrsti viðkomustaður innan heilbrigðisþjónustunnar. Það er auðvitað ekki fólki bjóðandi að sjúklingar skuli þurfa að bíða þar eftir þjónustu svo vikum skiptir.
Í fjárlögum ársins 2022 voru að frumkvæði stjórnarandstöðu settar inn 250 milljónir í niðurgreiðslu sálfræðiþjónustu. Þetta hefur enn ekki komið til framkvæmda og ekki er að sjá að verið sé að gera ráð fyrir þessu í fjármálaáætlun þrátt fyrir að lög um að sálfræðiþjónusta sé hluti af tryggingakerfinu hafi verið samþykkt á Alþingi 2020. Þetta er sérlega mikilvægt nú í kjölfar heimsfaraldurs þegar rannsókn eftir rannsókn sýnir neikvæð áhrif hans á andlega heilsu fólks. Hver mun kostnaðurinn verða í framtíðinni ef ekkert er að gert, ef andleg heilsa verður ekki sett á sama stall og líkamleg og sálfræðiþjónusta gerð aðgengileg öllum óháð efnahag?
Á sama tíma er ríkissjóður tilbúinn að greiða 700 milljónir í þóknun fyrir söluráðgjöf vegna sölunnar á Íslandsbanka, 700 milljónir í þóknun fyrir sölu sem hefur verið harðlega gagnrýnd, réttilega, fyrir að vera ógagnsæ og draga úr tiltrú og trausti fólks á sölu ríkiseigna, en ekki var hægt að setja 250 milljónir í nauðsynlega sálfræðiþjónustu. Hvers konar forgangsröðun er þetta eiginlega?
Þegar Viðreisn var í ríkisstjórn og fór með stjórn í félagsmálaráðuneytinu var samþykkt að auka opinberan húsnæðisstuðning í formi stofnframlaga. Ákvörðunin var mikilvægur liður í endurskoðun á forsendum kjarasamninga á almennum vinnumarkaði og að auka húsnæðisöryggi efnaminni fjölskyldna. Þetta var síðan víkkað út á síðasta kjörtímabili, svo að húsnæðisstuðningurinn náði til fleiri og efnameiri aðila og þeir sem verst voru settir urðu fyrir vikið undir í forgangsröðuninni. Uppsöfnuð þörf á félagslegu húsnæði er veruleg. Fjölmargir eru á biðlistum eftir húsnæði og ekki sér fyrir endann á því. Þess vegna er alvarlegt að lagt sé til að skera niður stofnframlög til byggingar leiguíbúða fyrir tekjulága einstaklinga um 2 milljarða. Sú aðgerð er óskiljanleg þar sem nauðsynlegt er að auka framboð á húsnæði fyrir þennan hóp. Þetta er sú leið sem hefur hjálpað til á framboðshlið og þessu mun ekki verða vel tekið af verkalýðshreyfingunni né heldur félögum eins og Brynju – hússjóði eða Byggingafélagi námsmanna.
Liður sem kallaður hefur verið Almennur varasjóður og sértækar fjárráðstafanir vekur athygli. Inn í þennan lið fóru 21,6 milljarðar á árinu 2020 og í fjárlögum fyrir árið 2022 er gert ráð fyrir 35,3 milljörðum þar inn. Í nýrri fjármálaáætlun er hins vegar aukið verulega við þennan lið og mun hann enda í 67,2 milljörðum árið 2027. Maður hlýtur að spyrja sig hvers vegna ráðherrar hafi til ráðstöfunar svo mikla fjármuni án samráðs við þingið. Hvað ræður því? Það er hægt að skilja að verið sé að áætla einhverja fjármuni í ófyrirséð útgjöld en þegar við sjáum hver fjárfestingarskuldin er í innviðum, hve mikil hún er, og hve hár vaxtakostnaður ríkissjóðs er, hlýtur maður að spyrja: Er þetta rétt forgangsröðun á þessum tímapunkti? Er ekki verið að ganga fulllangt í að skaffa ráðherrum fjárheimildir sem þeir geta svo ráðstafað að eigin geðþótta án samráðs bæði við Alþingi og fjárlaganefnd?
Í fjármálaáætluninni er rætt um afkomubætandi aðgerðir hins opinbera eftir hugsanlegum sviðsmyndum. Í frumvarpinu sjálfu er gert ráð fyrir afkomubætandi aðgerðum, að upphæð 9 milljörðum á ári, frá 2024–2027 eða 36 milljörðum samtals á tímabilinu. Hvernig það verður útfært liggur hins vegar ekki fyrir. Bjartsýn frávikssviðsmynd gerir ráð fyrir að ekki þurfi að grípa til slíkra aðgerða. Svartsýna sviðsmyndin sýnir hins vegar niðurskurð upp á 42 milljarða á ári eða samtals 168 milljarða niðurskurð á tímabilinu og ef niðurstaðan verður eitthvað í líkingu við svartsýnar spár þá er ekki von á góðu. Við sjáum að spáin hefur þegar riðlast og verðbólgan er að breyta þessari stöðu þannig að þessi bjartsýna spá verður alls ekki að veruleika.
Virðulegur forseti. Mig langar aðeins að minnast á sveitarfélögin sem eru auðvitað ein breytan í þessu öllu saman og þessi tvö stjórnsýslustig þurfa svo sannarlega að vinna saman til að þjóna hagsmunum allra landsmanna. Því er ekki gott að sveitarfélögin séu óviss um fjárframlög sín frá ári til árs og það veltur á því hver staða ríkissjóðs er hverju sinni. Þessu þarf að breyta með breytingum á Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.
Virðulegur forseti. Þessi fjármálaáætlun er ekki til þess fallin að auka traust almennings í garð hins opinbera. Við sjáum ofurbjartsýnar forsendur á tíma þar sem raunsæi skiptir öllu máli. Við sjáum þensluhvetjandi aðgerðir. Við sjáum áframhaldandi skuldasöfnun og við sjáum forgangsröðun sem nær ekki nokkurri átt. Hver gætir hagsmuna Alþingis ef ríkisstjórnin gerir það ekki?