fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.
Virðulegur forseti. Það hefur verið afar áhugavert að hlusta á þá umræðu sem hér hefur farið fram síðustu daga um fjármálaáætlun 2023–2027 og er klárlega vinna sem við í fjárlaganefnd munum og eigum að taka til okkar og inn í nefndina og skoða. Það er mikilvægt fyrir okkur að hlusta á þær raddir sem hér hafa komið fram í þingsal varðandi þessa áætlun. Það eru, eins og ég segi, margir áhugaverðir punktar sem hafa komið hérna fram sem þarf að skoða og það munum við gera á næstu vikum í nefndinni. Horfurnar eru hins vegar góðar. Þó að það séu blikur á lofti er varða efnahagsmál heimsins sökum ástandsins í Úkraínu þá er ekki enn ljóst hversu mikil áhrif það mun hafa á okkur hérna heima en engu að síður er okkur öllum orðið ljóst að þau áhrif verða umtalsverð, nákvæmlega hvað þau verða mikil og hvað þau munu vara lengi er ekki ljóst. En það er alveg klárt að þetta mun bíta okkur að einhverju leyti hér heima og er byrjað nú þegar. Hagkerfið er í uppsveiflu eftir hraðan viðsnúning á síðasta ári og vísitala hagsveiflunnar nú komin yfir meðaltal sem er afskaplega jákvætt. Í nýrri þjóðhagsspá Hagstofunnar er hagvöxtur svipaður og í síðustu spá en atvinnuleysið lækkar enn hraðar samhliða því að verðbólgan hækkar meira, sem er stóra rauða ljósið sem við þurfum að bregðast við og reyna að stoppa. Það er hins vegar ánægjulegt að atvinnuleysið er að lækka og með því að ferðaþjónustan muni koma af miklum þunga inn í sumar þá blasir kannski við okkur annað vandamál sem er að manna þau störf sem munu skapast í kjölfar fjölgunar ferðamanna. En verðbólgan er verkefnið og verkefni okkar allra sem hér eru á þingi og við þurfum að finna leiðir saman í því að reyna að sporna við þeirri hækkun sem hefur orðið og snúa þeirri þróun við.
Sumir helstu áhrifaþátta verðbólgunnar nú mega teljast tímabundnir. Kallar staðan á agaða hagstjórn til að koma í veg fyrir að þessi verðbólga festist í sessi. Þrátt fyrir það eru heimilin í sterkari stöðu og aldrei hafa færri átt mjög erfitt með að ná endum saman en nú og slíkt er afar ánægjulegt. Það þarf samt að halda vöku sinni og tryggja að slík þróun haldi áfram. Það sem ég segi er: Við þurfum að tryggja stöðugleika heimilanna. Um það snýst þetta, stöðugleika heimila og fyrirtækja í landinu.
Hærra orku- og olíuverð hefur hækkað útgjöld heimilanna um 1,2% á síðustu 12 mánuðum. Í alþjóðlegum samanburði er það lágt en þróunin er engu að síður alvarleg. Það er sömuleiðis ljóst að dragist átökin í Úkraínu á langinn þá getur þessi hækkun orðið enn þá meiri og þess vegna er brýnt fyrir okkur að fara að skoða það til lengri tíma hvernig við ætlum að bregðast við því ástandi sem uppi er nú og þurfum þá að horfa hér á orkuskiptin og innlenda orkugjafa, rafmagn.
Miklar verðhækkanir húsnæðis og fækkun íbúða á sölusíðum endurspeglar fyrst og fremst lækkun vaxta, þangað til í fyrra, og rúma fjárhagsstöðu heimilanna. Engu að síður er staðan á húsnæðismarkaðnum ein stærsta áskorun okkar á næstu misserum. Umræðan hefur verið mikil hér á þingi um húsnæðismálin og stöðuna á húsnæðismarkaðnum og verður það áfram. Það er alveg ljóst, og ég held að allir þeir sem eru hér inni séu sammála um það þó að menn séu kannski ekki sammála um leiðirnar og útfærslurnar, að þetta verkefni verður að vinnast með samningum og samtali milli sveitarfélaga og ríkisins og það er ekki gott og ekki hægt fyrir hvorugan aðilann að benda á hinn og kenna honum um. Menn verða einfaldlega að ná saman og koma fram með áætlanir eins og innviðaráðherra hefur boðað til þess að ná tökum á því ástandi sem uppi er nú á húsnæðismarkaðnum. Ég hef trú á því að sú áætlun muni koma fram fyrr en síðar og hef mikla trú á þeirri vinnu sem þar hefur verið boðuð.
Í faraldrinum varð verulegur tilflutningur á vinnuafli. Störfum hefur fækkað í ferðaþjónustu en fjölgað í geirunum sem hið opinbera greiðir fyrir að mestu. Fjöldi starfa er nú meiri en 2019 og má búast við því að erfitt verði að manna störf í ferðaþjónustu þegar hún tekur við sér, eins og ég kom inn á áðan. Aftur þarf þar að horfa á húsnæðismarkaðinn en það er ljóst með þann fjölda sem þarf að koma hér inn, væntanlega erlent vinnuafl, til að fylla upp í það gat og þá þörf sem skapast á markaðnum að þetta fólk þarf einhvers staðar að búa. Það er því ljóst að það þarf að horfa verulega vel til þessarar framtíðar á húsnæðismarkaðnum og þeirrar stöðu sem þar er uppi. Það er sama hvar við komum niður. Alltaf endum við einhvern veginn þar.
Áhrifaþættir hagvaxtar vaxa hægar en áður og sá vaxtarkraftur sem hagkerfið leitar í samkvæmt þjóðhagsspánni er nú 1 prósentustigi minni en meðalvöxtur síðustu tveggja áratuga fyrir faraldurinn. Gert er ráð fyrir að hagvöxtur í lok tímabilsins verði 2,4% en var 3,6 árið 2019. Meðaltal vaxtar framleiðslugetu þjóðarbúsins á föstu verðlagi er um 4%. Það er því ljóst að hagkerfið leitar fljótt í jafnvægi en samkvæmt þjóðhagsspá leitar hagvöxtur fljótt í langtímameðaltal og framleiðsla verði jöfn framleiðslugetu þjóðarbúsins á næsta ári. Stuðla þarf að efnahagslegum stöðugleika en eftir mikinn stuðning og viðspyrnu í hagkerfinu árið 2020 munu opinber fjármál vinna gegn þenslu og stuðla þannig að efnahagslegum stöðugleika á tímabili fjármálaáætlunar.
Virðulegur forseti. Sú áætlun sem hér liggur fyrir leggur grunn að endurreisn íslensks hagkerfis og efnahags í kjölfar efnahagslegra þrenginga eftir Covid-19, en ljóst er að sú óvissa sem uppi er í heimsmálum núna getur og mun hafa ófyrirséðar afleiðingar fyrir okkur á komandi árum.