fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.
Forseti. Í fjármálaáætlun leggur ríkisstjórn fram stefnu sína til næstu fimm ára. Hér á ég aðallega við 20. gr. laga um opinber fjármál þar sem segir:
„Hver ráðherra setur fram stefnu fyrir þau málefnasvið og málaflokka sem hann ber ábyrgð á til eigi skemmri tíma en fimm ára.“
Þetta er svo útskýrt nánar í greinargerð. Í fyrsta lagi er stefnumótun ætlað að tryggja að ljóst sé hvaða markmiðum og áherslum stefnt er að á hverju málefnasviði og að fyrir liggi skýr forgangsröðun. Í öðru lagi felur stefnumótun í sér formlega greiningu og mat á stöðu þjónustu og starfsemi á einstökum málefnasviðum. Í þriðja lagi felst í stefnumótun ákvörðun um hvaða leið skuli fylgt til að ná fram settum markmiðum. Hér þarf að huga að kostnaði, áhrifum og ávinningi hverrar leiðar fyrir sig og bera saman ólíkar forsendur þeirra. Í fjórða lagi felur stefnumótun í sér að markmiðin séu endanlega mótuð, skilgreind og þeim forgangsraðað í samræmi við þá greiningarvinnu sem fram hefur farið. Markmið skulu vera auðsæ, hlutlæg og mælanleg. Í fimmta lagi þarf að skilgreina verkefni og aðgerðir, þ.m.t. lagabreytingar, sem framkvæma þarf til að ná settum markmiðum. Í sjötta lagi þarf að leggja fram áætlun um framkvæmd einstakra þátta stefnumótunarinnar, tryggja samræmi, skýra forgangsröðun og skilgreina tímafresti og áætlaðan kostnað.
Ég byrja á að eyða einhverjum tveimur mínútum af ræðu minni í að benda á þetta enn einu sinni vegna þess að enn og aftur er verið að skila Alþingi fjármálaáætlun sem er ekki samkvæmt þessum fyrirmælum. Ég hafði ákveðnar væntingar áður en þessi fjármálaáætlun birtist. Ég bjóst við að það væri a.m.k. reynt að koma með eitthvert plan um hvernig ætti að koma til móts við helstu áskoranirnar í íslensku samfélagi. Það eru nýbúnar að vera kosningar og svoleiðis. Ef einhvers staðar er staður og stund fyrir ríkisstjórnina til að sýna stefnu sína á heildstæðan hátt þá er það í fjármálaáætlun sem sýnir forgangsröðun til næstu fimm ára. Hvar er t.d. áætlunin í húsnæðismálum? Engin. Hvar er áætlun í heilbrigðismálum? Óbreytt ástand. Hvernig ætlar ríkisstjórnin að ná markmiðum sínum í loftslagsmálum? Engin útskýring, bara niðurskurður.
Byrjum á vandanum á húsnæðismarkaðnum. Samkvæmt nýuppfærðri greiningu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar vantar u.þ.b. 1.000 fleiri íbúðir í byggingu. Ef ríkið tæki ákvörðun um að taka þátt í þeim öllum með stofnframlögum væri kostnaður ríkisins upp á einhverja 7 milljarða kr. eða svo. Framlögin í þetta málefnasvið eru núna 12 milljörðum lægri en þau voru 2016 og munar um minna. Hér væri einföld, augljós og sjálfsögð stefna ríkisstjórnarinnar að segja einfaldlega: Við munum koma að byggingu þriðjungs þeirra íbúða sem vantar upp á og veita til þess 2 milljörðum kr. á ári. En hver er hins vegar stefna ríkisstjórnarinnar? Við verðum að bíða þangað til í haust, þá fáum við þingsályktunartillögu. Það er ekki eins og að þetta sé nýr vandi sem datt í fangið á okkur rétt áður en fjármálaáætlun var gerð. Húsnæðismálin voru t.d. í stafni hjá Framsóknarflokknum í kosningabaráttunni. Þar er fjármálastofnunum kennt um vandann og sagt að hlutdeildarlán virki. Það var sagt í störfum þingsins í gær að Framsókn væri alltaf með góðar hugmyndir í húsnæðismálum, með leyfi forseta:
„Það er ekki í fyrsta sinn sem Framsókn finnur lausnir og fer nýjar leiðir og hafa þær skilað mjög góðum árangri í þágu samfélagsins alls,“ sagði hv. þm. Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir í störfum þingsins í gær. Man einhver eftir leiðréttingunni eða 90% lánunum og hvernig þau fóru? Það er Framsóknaruppskrift. Ef ekki er hægt að lesa um það í rannsóknarskýrslu Alþingis um Íbúðalánasjóð, svo ég vitni til skýrslunnar, með leyfi forseta:
„Þessi vegferð endaði illa og varð þjóðinni dýrkeypt.“
Mjög einfalt. Hér erum við ekki bara að tala um tugi milljarða heldur slagaði tapið upp í 200 milljarða. Aftur erum við í húsnæðisvanda og Framsókn fær það hlutverk að spreyta sig á lausnum. Ég bara get ekki beðið. Nei, bókstaflega, ég bara get ekki beðið. Ég vil ekki bíða. Það á ekki að þurfa að bíða með þetta af því að hérna er áætlun stjórnvalda. Frestunaráráttan er alveg yfirgengileg. Munið þið þegar kófið byrjaði t.d.? Í staðinn fyrir að bjóða stefnu út úr kófinu frestaði ríkisstjórnin því um hálft ár að leggja fram stefnu. Þegar hún kom svo loksins var hún hvorki fugl né fiskur. En þetta er ekki flókið. Það þarf bara að byggja íbúðir. Við vitum m.a.s. hversu margar íbúðir þarf að byggja. Ríkisstjórnin þarf bara að segja hversu stóran hluta af þeim íbúðum hún ætlar t.d. að styðja með stofnframlögum. Málið er ekki flóknara en það á þessu stigi. Það á ekki að vera svo flókið verkefni. Það ætti að vera auðvelt að segja: 300 í viðbót, við tökum þátt í því. Það væri lágmarkið. Nær lagi að segja 500 eða eitthvað svoleiðis.
Það væri hægt að tala um það í allan dag hversu lélegt það er að geta ekki komið með áætlun í húsnæðismálum en ég þarf því miður að tala um skort á fleiri áætlunum í stórum málaflokkum. Tökum heilbrigðismálin t.d. næst. Það hefur verið vandi í heilbrigðiskerfinu í mörg ár, miklu lengur en ég er búinn að vera á þingi. Ár eftir ár hafa fulltrúar heilbrigðiskerfisins komið til fjárlaganefndar og útskýrt vanreiknaðan kostnað vegna kjarasamninga, álag vegna manneklu, skort á úrræðum fyrir útskrifaða sjúklinga sem þurfa umönnun, svokallaðan fráflæðisvanda, klúður með kjarasamninga hjúkrunarfræðinga og svo mætti lengi telja. Við höfum fengið umsögn eftir umsögn, skýrslu eftir skýrslu sem segja allar það sama. Nýjasta skýrslan endurtekur það sama og búið er að segja þinginu ár eftir ár. Ef ekki verður gripið til aðgerða þá mun það kosta okkur a.m.k. 10 milljarða aukalega á hverju ári eftir rúman áratug. Hverjar eru þessar viðeigandi ráðstafanir? Að færa langtímaumönnunarsjúklinga í viðeigandi úrræði. Með öðrum orðum: Meiri heimaþjónusta og fleiri hjúkrunarrými. Laga fráflæðisvandann. Til þess þarf að byggja fleiri hjúkrunarrými og fá fleira starfsfólk. Þótt áskoranir séu fleiri þá er þetta svo mikið lykilatriði að allt annað fölnar í samanburði. Og hvað ætla stjórnvöld að gera? Jú, það fæst ekki fjárheimild eftir 2024 til að byggja hjúkrunarheimili. Það þýðir að það þarf ekki eins mikið af starfsfólki á hjúkrunarheimili sem ekki á að byggja, blessunarlega kannski því að ég hef ekki hugmynd um hvernig á að finna starfsfólk í þau verkefni hvort sem er, þ.e. ég er með fullt af hugmyndum um það en ríkisstjórnin kannski síður, alla vega ekki í áætluninni. Til að byrja með væri hægt að hætta að senda hjúkrunarfræðinga alltaf í gerðardóm, svo að dæmi sé tekið. Ég á við að ríkisstjórnin er ekki með stafkrók um hvernig en fjármálaáætlun fjallar um það, með leyfi forseta:
„Rýna þarf í vinnufyrirkomulag og starfsumhverfi með það fyrir augum að heilbrigðisstofnanir verði eftirsóttir vinnustaðir og mönnun sé í samræmi við þjónustuþarfir sjúklinga og gæða- og öryggisviðmið. Því þarf að fylgjast með mælikvörðum sem tengjast mönnun og álagi sem hefur áhrif á öryggi sjúklinga.“
Hérna er vandinn gríðarlega skýr, með leyfi forseta:
„Landspítali hefur þurft að loka rýmum vegna skorts á hjúkrunarfræðingum og sjúkraliðum, auk þess sem umtalsverður hluti þessara stétta mun hefja töku lífeyris á næstu árum.“
Til að mæta þessum vanda lagði heilbrigðisráðherra fram 18 tillögur að aðgerðum árið 2018 um hvernig væri hægt að laða hjúkrunarfræðinga til starfa. Ein af þeim aðgerðum virðist hafa verið að semja ekki við hjúkrunarfræðinga og senda launakröfur þeirra í gerðardóm. Rosalega aðlaðandi aðgerð til að efla mönnun, er það ekki? Einhverjir koma kannski til með að segja: En fjárheimildir heilbrigðiskerfisins eru að aukast rosalega mikið. Já, en ef dregin er frá fjárfesting vegna nýja Landspítalans þá er aukningin u.þ.b. 2% á ári, sem er vissulega meira en 1% meðaltalsaukning en ástæðan er rosalega einföld: Það eru fleiri sjúklingar. Lýðfræðilegar breytingar.
Það væri hægt að tala um áralangt klúður í þessum málaflokki í allan dag en ég á annan stóran málaflokk eftir. Það eru loftslagsmálin. Það er framtíðarvandinn mikli. Mig langar til að byrja á grunninum því að það er sama hvað hverjum finnst um ástæður loftslagsbreytinga, hvort þær í raun og veru gerist eða ekki, þá er lausnin við vandanum samt góð, m.a.s. þó að þetta væri ekki vandi, því að lausnin er nefnilega sjálfbært samfélag sem er góð hugmynd sem borgar sig alltaf og miklu meira en það. Sama hvað. Þannig að sama hvað fólki finnst um vandann þá er lausnin eitthvað sem við ættum öll að vilja, algerlega óháð ástæðunni. Stefna ríkisstjórnarinnar er að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda um 55% árið 2030 miðað við losun 1990. Það stendur í fjármálaáætluninni. Losunin er hins vegar búin að aukast um 28% árið 2019 miðað við 1990. Í raun þarf því að draga saman losun um 65% frá 2019–2030, á rétt rúmum áratug. Það sem er merkilegt er að þetta 55% losunarhlutfall er hvergi í mælikvörðum stjórnvalda. Það eru hins vegar nokkrir mælikvarðar sem fjalla um samdrátt í losun. Fyrst á málefnasviði nýsköpunar, í hagnýtingu tæknilausna í þróun loftslagsmála. Þar á losun að minnka frá um 3.000 kg af koltvíoxíðsgildum niður í minna en 2.700. Það er ekki nema 10% samdráttur á heilum þremur árum áður en það þarf að vera búið að ná 65% samdrætti. Síðan á losun úr samgöngum að minnka úr um 1.000 kílótonnum ígilda niður í minna en 700. Þar er 33% samdráttur, helmingur af því sem þarf að vera búið að ná þremur árum seinna. Á málefnasviði samgangna er meðaltalslosun fólksbíla að minnka um 36% á hvern ekinn kílómetra. Um helmingur þess sem þarf að vera búið að ná þremur árum seinna. Í landbúnaði er samdrátturinn 5% árið 2027. Í sjávarútvegi er 30% samdráttur árið 2015 o.s.frv. Og þar er miðað við 2005 en ekki 1990 sem er alveg sturlað því að í fjármálaáætluninni stendur, með leyfi forseta:
„Ísland tekur þátt í markmiði ESB um að samdráttur í losun gróðurhúsalofttegunda verði 55% árið 2030 miðað við losun á árinu 1990.“
Þetta er á bls. 299. Hins vegar segir, með leyfi forseta á bls. 321:
„Stjórnvöld hafa jafnframt sett sjálfstætt landsmarkmið um 55% samdrátt í losun sem fellur utan ETS-kerfisins fyrir 2030 miðað við 2005.“
Góðir landsmenn. Þetta er stefna stjórnvalda í hnotskurn. Þau vita ekki hvað þau vilja. Til hamingju. Ekki kjósa Framsókn eða VG eða Sjálfstæðisflokkinn.