um fundarstjórn.
Frú forseti. Það var fyrir tveimur dögum síðan að hv. þm. Halldóra Mogensen kom hingað upp í ræðustól og ámálgaði það að hæstv. innviðaráðherra kæmi á Alþingi og gæfi skýrslu. Heimild til þessa er í 61. gr. þingskapalaga þar sem segir að forseti geti heimilað ráðherrum að gera þetta. Valdið eða ábyrgðin er með því hjá hæstv. ráðherra. Hann hefur fjallað um þetta mál, sem við þekkjum öll hvert er, í fjölmiðlum en ekki við sjálft Alþingi. Ég vildi því spyrja hvort forseta hefði borist einhver slík ósk, einhver slík beiðni frá hæstv. ráðherra í ljósi þess að allnokkrir þingmenn hafa nú óskað eftir því að þetta nauðsynlega samtal fái að eiga sér stað hér í þingsal.